Vendingar dagsins gerðu kjaradeiluna síst einfaldari en fljótlega eftir hádegi úrskurðaði Héraðsdómur Reykjavíkur að Eflingu bæri skylda til þess að afhenda ríkissáttasemjara félagatal sitt svo atkvæðagreiðsla um miðlunartillöguna sem ríkissáttaasemjari lagði fram geti farið fram sem fyrst.
Formaður Eflingar sagði úrskurðinn ósanngjarnan
„Þetta er auðvitað rangur og ósanngjarn úrskurður, það eru fyrstu mín viðbrögð, Það er búið að kveða upp dóm um að við eigum afhenda kjörskrána.“
Rétt rúmlega klukkutíma síðar úrskurðaði félagsdómur að verkfall Eflingar sem á að byrja í hádeginu á morgun hafi verið boðað með löglegum hætti. Sólveig Anna sagði verkfallsaðgerðir fara fram samkvæmt plani.
„Þetta verkfall er löglegt, aðgerðir hefjast á morgun á hádegi.“

Atkvæðagreiðslan muni fara fram
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins sagði fyrri úrskurð dagsins stærra mál og vill að Efling endurskoði verkfallsboðunina.
„Aðalatriðið er að það féll dómur í morgun þar sem Eflingu er gert að afhenda félagatal sitt sem þýðir að það sem forysta Eflingar óttast mest er að fram fari kosning á meðal félagsmanna um miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Sú atkvæðagreiðsla mun fara fram. Ég fagna því og við hljótum að velta því fyrir okkur í beinu framhaldi hvort að ekki sé eðlilegt að gera þá kröfu á hendur Eflingu að þau fresti boðuðu verkfalli í ljósi þess að ekki er lengur ágreiningur um það hvort þeim beri að afhenda atkvæðaskrá til ríkissáttasemjara.“
Boltinn hjá embættismönnum ríkisins.
„Það hlýtur að vera þannig að dómur hefur úrskurðað um innsetningarbeiðni. Þá hljóta þar til bærir embættismenn að einhenda sér í það verkefni að ná atkvæðaskránni úr krumlum forystu Eflingar.“

Formaður Eflingar er hins vegar ekki á þeim buxunum.
„Eins og ég segi, ég reikna ekki með öðru en að það hljóti að fara svo að við fáum flýtimeðferð og á meðan við bíðum niðurstöðu æðra dómsvalds þá afhendum við ekki kjörskrána,“ segir Sólveig Anna.
Úrskurðurinn tali sínu máli
Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari segir úrskurð héraðsdóms skýran.
„Dómur héraðsdóms er ákaflega skýr. Í fyrsta lagi þá tekur héraðsdómur allan vafa um það að þessi miðlunartillaga er sett fram lögum samkvæmt þannig að miðlunartillagan er fullkomlega löglega fram sett. Í annan stað segir héraðsdómur hátt og skýrt að Eflingu ber að veita félagsmönnum tækifæri til þess að greiða atkvæði um miðlunartillöguna sem er það sem málið snýst um.“
Formaður Eflingar sagði félagið ekki ætla að afhenda félagatalið fyrr en æðra dómstig hefur úrskurðað. Aðalsteinn hefur trú á því að félagið fylgi úrskurðinum þrátt fyrir það.
„Ég neita að trúa því að Efling fylgi ekki lögum eða að forysta félagsins fylgi ekki dómi héraðsdóms.“
Kemst ekki snemma á fund vegna anna
Aðalsteinn hefur boðað deilandi fylkingar á sinn fund á morgun en Sólveig Anna segist ekki komast á fundinn jafnsnemma og hann hefði viljað. Hún svaraði fundarboði hans opinberlega í kvöld.
Þá sagðist hún ekki hafa trú á því að ríkissáttasemjari muni knýja fram aðför til þess að fjá umdeilda félagaskrá Eflingar afhenta. Með því væri hann að grafa undan rétti verkalýðsfélags til réttlátrar málsmeðferðar.