Erna Sóley er greinilea í hörkuformi í kúluvarpinu. Hún sló Íslandsmetið á móti í Texas þann 27.janúar þegar hún kastaði 17,34 metra. Fyrir það mót hafði hún lengst kastað 16,95 metra.
Í nótt gerði hún sér hins vegar lítið fyrir og kastaði kúlunni 17,70 metra á móti í Albuquerque í Bandaríkjunum og sló því eigið Íslandsmet. Þetta var síðasta kast hennar í keppninni.
Kast Ernu er ellefta lengsta kastið í Evrópu í ár og það fjórtánda lengsta á heimsvísu.