Kane heldur Meistara­deildar­vonum Totten­ham á lífi

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Harry Kane hefur nú skorað 266 mörk fyrir Tottenham Hotspur.
Harry Kane hefur nú skorað 266 mörk fyrir Tottenham Hotspur. EPA-EFE/Neil Hall

Tottenham Hotspur vann nágranna sína í Fulham með einu marki gegn engu í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Aðeins munaði tveimur stigum á liðunum þegar leikurinn hófst. Fulham, sem hefur leikið einkar vel á leiktíðinni, hefði farið upp fyrir Tottenham með sigri en allt kom fyrir ekki.

Harry Kane skoraði eina mark leiksins í blálok fyrri hálfleiks og tryggði þar með Tottenham stigin þrjú. Fulham spiluðu vel og fengu færi til að jafna metin en inn vildi boltinn ekki, lokatölur á Craven Cottage 0-1.

Tottenham er sem fyrr í 5. sæti en nú aðeins þremur stigum á eftir Manchester United sem er í 4. sætinu. Man Utd á þó leik til góða. Fulham er á sama tíma í 7. sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira