Þann 15. janúar fyrir rétt rúmu ári síðan varð gríðarlega kraftmikið eldgos í Hunga Tonga Hunga Ha'apai eldfjallinu. Eldgosið var svo kröftugt að höggbylgju frá gosinu varð vart um allan heiminn, meðal annars hér á landi eins og Vísir sagði frá á sínum tíma.
The violent eruption a few hours ago of the Hunga Tonga-Hunga Haʻapai volcano captured by satellites GOES-West and Himawari-8. pic.twitter.com/PzV5v9apF6
— Wonder of Science (@wonderofscience) January 15, 2022
Þetta eru hins vegar ekki einu áhrifin sem sprengigosið öfluga hafði eða hefur á Ísland. Veðurfræðingurinn Trausti Jónsson, sem heldur úti vefsíðunni Hungurdiskar, bendir til að mynda á að síðustu daga hafi borið á „óvenjulegum litbrigðum himinsins í heiðríkjunni,“ sem sé greinilegast við sólarupprás og sólarlag.
„Langlíklegasta ástæðan er sú að vatn úr eldgosinu mikla á Tonga-eyjum fyrir ári (15. janúar 2022) hefur loksins náð til heiðhvolfsins hér á norðurslóðum. Hugsanlega eru einhver gosefni önnur einnig á ferð,“ skrifar Trausti.
Falleg silfurlituð ský
Sævar Helgi Bragason, ritstjóri Stjörnufræðivefsins, tekur undir skrifa Trausta á Twitter og bendir Íslendingum á að horfa eftir sólarupprás og sólarlagi.
Aska og vatnsgufa í heiðhvolfinu frá Hunga Tonga sprengigosinu í fyrra býr til fallega sólarupprás og sólsetur þessi dægrin. Háskýin frá gosinu eru hálfpartinn silfurlituð að sjá. Líttu eftir þeim nú í morgunsárið. Ht @hungurdiskar pic.twitter.com/Udwsejly3Y
— Sævar Helgi Bragason (@saevarhb) January 19, 2023
„Gosið sem varð í janúar í fyrra var svo öflugt að það þeytti gífurlegu magni af bæði vatnsgufu og ösku í heiðhvolfið okkar. Svo sjá háloftavindar um að það að dreyfa því um alla jörð. Það er það sem litar sólsetrið okkar og býr til þessu fallegu silfurlituðu ský sem fólk hefur kannski tekið eftir undanfarið,“ útskýrir Sævar Helgi í samtali við Vísi.
Trausti bendir einnig á í færslu á Hungurdiskum að vart hafi orðið við svipað fyrirbrigði eftir eldgosið kröftuga í Pinatubo-fjalli á Filippseyjum í júní 2018.
„Gosið mikla sem varð í Pinatubofjalli á Filippseyjum í júní 1991 olli miklum breytingum á útliti himinsins hér á landi - strax í október það ár og var útlitsbreytingin greinanleg hátt á annað ár - en þá var mikið magn ösku líka á ferð, auk vatnsgufu. Samskipti suður- og norðurhvela jarðar ganga hægt fyrir sig - tæpa fjóra mánuði tók að koma efninu úr Pinatubo hingað norður, en það hefur tekið um ár fyrir efnið úr Tonga-gosinu,“ skrifar Trausti.
Lofthjúpurinn hreinsar sig á endanum en óvíst hvenær
Sævar Helgi segir óvitað hversu lengi þessara áhrifa verði vart á Íslandi.
„Svo er spurning hversu lengi þetta varið. Lofthjúpurinn að lokum hreinsar sig en það gæti tekið einhver ár eins og þekkt er eftir stór eldgos,“ segir Sævar Helgi.
Íslendingar eru ekki þeir einu sem hafa tekið eftir litskrúðugri sólarupprás eða sólarlagi. Síðastliðið sumar var fjallað um ægifögur sólsetur á Nýja-Sjálandi og í Ástralíu, sem rakin voru til gosefna úr eldgosinu umrædda.
Vísindamenn hafa rannsakað eldgosið mikla í Hunga Tonga Hunga Ha'apai-eldfjallinu síðastlið ár. Meðal annars hefur komið í ljós að annar eins fjöldi eldinga hafi aldrei mælst á sama svæði á jafn skömmum tíma og í eldgosinu kröftuga.