Innlent

Fréttamyndbönd ársins 2022: Rós í ruslið, ráðherra á flótta og stórmeistari í karókí

Bjarki Sigurðsson skrifar
Fréttamyndbönd ársins eru fjölmörg. Fréttastofa mælir með að lesendur skoði þau flest, tja, ef ekki bara öll.
Fréttamyndbönd ársins eru fjölmörg. Fréttastofa mælir með að lesendur skoði þau flest, tja, ef ekki bara öll. Vísir

Nú þegar árið 2022 er senn á enda er rétt að líta yfir nokkur af þeim ótrúlegu myndböndum sem birst hafa í fjölmiðlum. Það var jú margt sem gekk á í ár, óveður, eldgos og kosningar til sveitarstjórnar. 


Vindmyllan loksins felld

Þó það virðist vera eins og öld síðan það tók sprengjusveit Landhelgisgæslunnar heilar sex tilraunir til að fella vindmyllu í Þykkvabæ, þá er einungis tæpt ár síðan þá. Vindmyllan hafði eyðilagst í bruna nokkrum dögum áður og því átti að sprengja hana og fella. 

Fréttamaður okkar, Lillý Valgerður Pétursdóttir, og tökumaður, Arnar Halldórsson, voru stödd í Þykkvabæ á meðan vindmyllan var felld. Það átti ekki að taka of langan tíma en leikar enduðu með sex tíma beinni útsendingu og þjóðin fylgdist agndofa með. Vindmyllan féll loks klukkan 19:30.

Klippa: Vindmyllan í Þykkvabæ felld í sjöttu tilraun

Önnur vindmylla var þó eftir en hún var felld í september. Þá voru sérfræðingar Hringrásar fengnir til að skera hana í sundur. Það gekk mun betur og tók einungis eina tilraun. 

Klippa: Seinni vindmyllan í Þykkvabæ felld

Þingmaður vs Óveður

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, komst í hann krappann er mikið óveður gekk yfir landið í febrúar. Hún brá sér rétt út af heimili sínu í Borgarbyggð þegar hún féll á hnén og rann af stað á ísilagðri innkeyrslu. Rann hún niður innkeyrsluna í skafl sem var skömmu frá.

Ólafur Daði Birgisson, eiginmaður Lilju Rannveigar, hélt sér inni á meðan og tók myndbönd af hrakförum eiginkonunnar. Þegar fréttastofa spurði hann hvers vegna hann hafi gripið til símans en ekki reynt að hjálpa Lilju svaraði hann: „Ég var að sjálfsögðu inni að hugsa um börnin,“ á léttum nótum. 

Klippa: Þingmaður í baráttu við storminn

Og Lilja var ekki sú eina sem þurfti að berjast gegn íslenskri veðráttu í ár. Eigendur framleiðslufyrirtækisins Snark voru stálheppnir að ekki fór verr er alda skall á húsnæði þeirra við fiskislóð í mars. Myndband af öldunni náðist á öryggismyndavél fyrirtækisins.

Klippa: Risastór alda skellur á húsnæði við Fiskislóð

Norðurlandið slapp ekki frekar en vanalega við óveðrið og í september gekk sjór á land á Akureyri. Það flæddi yfir götur og inn í iðnaðarhús á Oddeyrinni. Fréttamaður okkar fyrir norðan, Tryggvi Páll Tryggvason, náði mögnuðu myndefni af öllu sem átti sér stað.

Klippa: Allt á floti á Akureyri

Óveður er ekki eina tegund veðurs sem getur valdið usla. Þvert á móti var það gott veður á Austurlandi í mars sem olli því að Grímsá flæddi yfir stíflugarð við Grímsárvirkjun. Meðalrennsli árinnar er um 13 rúmmetrar á sekúndu en rennslið mældist mest 900 rúmmetrar á sekúndu þegar áin flæddi yfir garðinn. 

Klippa: Grímsá flæddi yfir stíflugarð

Myndbandsleki frá Bankastræti

Hnífstunguárás var framin á skemmtistaðnum Bankastræti Club í nóvember. Þar hlupu tæplega þrjátíu grímuklæddir menn inn á staðinn og réðust á þrjá menn sem sátu niðri í karókíherbergi staðarins. Þrjátíu manns eru með stöðu sakbornings í málinu sem er enn til rannsóknar hjá lögreglunni. 

Myndbandi af árásinni var lekið til fjölmiðla nokkrum dögum eftir árásina. Myndbandið kom úr öryggismyndavél staðarins. Lögreglan hafði myndbandið í fórum sér og var myndbandinu lekið af starfsmanni lögreglunnar. Sá einstaklingur hafði ekki ætlað sér að myndbandið færi í fjölmiðla líkt og raunin varð en honum var vikið úr starfi eftir rannsókn innanhús. 

Klippa: Hnífstunguárás á Bankastræti Club

Stórmeistarinn mátar sig við Basshunter

Heimsmeistaramótið í Fischer-slembiskák var haldið hér á landi í október. Hikaru Nakamura sigraði mótið eftir einvígi við Ian Nepomniachtchi um titilinn. Einn besti skákmaður allra tíma, Norðmaðurinn Magnus Carlsen, tók einnig þátt í mótinu. Hann sigraði kannski mótið en hann kom, sá og sigraði í karókí á skemmtistaðnum Röntgen. 

Hann tók þar lagið Boten Anna með sænska tónlistarmanninum Basshunter. Hjörvar Steinn Grétarsson stórmeistari aðstoðaði hann við sönginn sem gestur Röntgen náði á myndband. 

Klippa: Magnus Carlsen syngur Boten Anna í karókí

Vildi að rósin færi í ruslið

Kosið var til sveitarstjórna um land allt í maí. Sem fyrr reyndu stjórnmálaflokkar landsins að sannfæra þá óákveðnu um að kjósa sig. Sjálfboðaliðar hringdu í fólk til að fræða það um starfið eða gengu á milli húsa. Einn sjálfboðaliði Samfylkingarinnar, Elín Soffía Harðardóttir, lenti illa í því þegar hún hringdi dyrabjöllunni hjá manni og bauð honum rauða rós.

Enginn opnaði útidyrahurðina en maðurinn svaraði í gegnum dyrasímann. Elín spurði hvort hún mætti bjóða honum rósina og sagði maðurinn henni að hún mætti endilega henda rósinni í gráu tunnuna. Samskiptin voru tekin upp í gegnum myndavél á dyrabjöllu mannsins og birti hann sjálfur myndband af atvikinu á Twitter. 

Klippa: Benti sjálfboðaliða á að rósin væri best geymd í tunnunni

Myndbandið fór misvel í fólk enda fór það í víðtæka dreifingu. Elín sagðist aldrei hafa lent í öðru eins. 

„Ég er búin að vera í sjálfboðaliðastarfi fyrir flokka og í forsetakosningum síðan ég var sextán ára, og nú komin á sjötugsaldur. Ég hef bara aldrei orðið fyrir svona, þarna er bara verið að gera lítið úr manni,“ sagði Elín í samtali við fréttastofu á sínum tíma. 


Innviðaráðherra á flótta

Sigurður Ingi Jóhannesson innviðaráðherra hafði engan áhuga á því að svara spurningum fréttamanns okkar, Snorra Mássonar, er hann reyndi að ræða við hann um ummæli sem ráðherrann lét falla á Bændaþingi í apríl. 

Sigurður gekk í burtu er hann var spurður hvað hann sagði nákvæmlega og vísaði eingöngu til yfirlýsingar sinnar sem send var út daginn áður. Á meðan reyndi hann að leita að ráðherra bíl sínum en bíllinn var hvergi sjáanlegur. Hann þurfti því að ganga skömmustulegur í burt frá ráðherrabústaðnum.

Klippa: Vildi ekki tjá sig og fór undan í flæmingi

Flúði börnin í Kringlunni

Annar flótti vakti ansi mikla athygli á árinu, þó allt öðruvísi flótti en hjá Sigurði. Það var þegar samfélagsmiðla- og útvarpsstjarnan Gústi B var staddur í Kringlunni til að skemmta þeim börnum sem saman voru komin til þess að sníkja nammi á öskudaginn. 

Ákveðið hafði verið að Gústi yrði á svæðinu í tvo klukkutíma en hann þurfti að flýja eftir einungis fimm mínútur. Börnin voru svo mörg og ágeng að ekki var hægt að tryggja öryggi allra á meðan hann væri þarna. 

Klippa: Aðstæður fóru úr böndunum í Kringlunni

Kvikmyndakennt innbrot

Innbrot í verslunina Prinsinn í Árbænum vakti mikla athygli þrátt fyrir að þjófurinn hafi farið tómhentur heim. Hann hafði sagað gat á loft verslunarinnar og seig þar niður reipi. Hann reyndi að opna sígarettuskáp sem hann komst ekki inn í. Þá reyndi hann að flýja. 

Hann gerði gat á glugga verslunarinnar og smeygði sér þannig út. Gatið var ansi lítið og festist hann smávegis í því áður en hann rann út og hljóp á brott. Auðvitað náðist þetta allt saman á öryggismyndavélar verslunarinnar og myndbandið sýnt í kvöldfréttum Stöðvar 2. 

Klippa: Lygileg innbrotstilraun eins og klippt út úr kvikmynd

Eldgos vol. 2

Svo á það einnig til að gleymast að hér varð eldgos annað árið í röð. Þann 3. ágúst hóf að gjósa í Meradölum, stuttu frá Geldingadölum þar sem hafði gosið árið áður. Eldgosið var eins og segull fyrir ferðamenn og skemmtu ljósmyndarar og tökumenn sér konunglega þann stutta tíma sem gosið var í hámarki. 

Hér fyrir neðan má sjá tvær klippur úr gosinu sem tveir af tökumönnum fréttastofu, Arnar Halldórsson og Einar Árnason, tóku upp. Ef mynd segir meira en þúsund orð, hvað ætli þessi tvö myndbönd segi okkur?

Klippa: Magnað drónamyndband sýnir eldgosið í allri sinni dýrð

Klippa: Fyrstu myndirnar úr háloftunum af eldgosinu

Og þú hélst virkilega að þú færir í gegnum þessa samantekt án þess að sjá Vilhjálm Sigurðsson, í dag betur þekktur sem Villi á Benzanum, sem var ein af hvunndagshetjum ársins þegar hann óð inn í brennandi strætisvagn við Grensásveg. 

Elísabet Inga Sigurðardóttir fréttakona tók sögulegt viðtal við hann þar sem hann lýsti atburðarásinni. 

Klippa: Fasta­gestur á Benzanum hetja gær­dagsins


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×