Lífið

Stjörnu­lífið: Fyrsti í að­ventu, kókos­hnetur og „góður dagur með Sönnu Marin“

Elísabet Hanna skrifar
Stjörnulífið er liður á Lífinu á Vísi þar sem farið er yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera síðustu daga.
Stjörnulífið er liður á Lífinu á Vísi þar sem farið er yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera síðustu daga. Skjáskot/Instagram

Fyrsti í aðventu var í gær og það eina sem ætti að vera framundan eru jólaljós, heitt kakó, skreytingar og gleði í hjörtum. Listamenn landsins eru að gíra sig í gang fyrir jólatörnina og er spennan í hámarki.

Söngkonan Svala Björgvins er spennt fyrir jólatörninni þar sem hún ætlar að gleðja fólkið með fallegum tónum.

Söngkonan Selma Björnsdóttir hitti Vigdísi Finnbogadóttur, fyrsta kvenkyns forseta heimsins. Þær stöllur tóku sig vel út saman.

Söngvarinn Aron Can varpaði sónarmynd af ófædda drengnum sínum upp á svið á tónleikunum sem hann hélt í Hörpu síðustu helgi.

Hann kom einnig fram með Birni, Herra Hnetusmjör og Joey Christ og segir samstarfið skrá sig á spjöld sögunnar.

Parið Brynja Dan og Jóhann Sveinbjörnsson eru á bleiku skýi saman.

Söngkonan Bríet er ofurtöffari í öllu því sem hún tekur sér fyrir hendur.

Vikan með Gísla Marteini tók upp þátt númer tvö hundruð og Birgitta Haukdal, Vigdís Hafliða og Jón Gnarr voru með í fjörinu sem gestir hjá honum. 

Raunveruleikastjarnan Birgitta Líf ef komin heim eftir þriggja vikna þrítugsferð til Bali.

Skemmtikraftarnir Gunni og Felix eru tilbúnir í fíflaskapinn í aðdraganda jóla.

Raunveruleikastjarnan og dansarinn Ástrós Traustadóttir fór á kaffideit í Kaupmannahöfn.

Útvarpsmaðurinn Siggi Gunnars og söngvarinn Jógvan Hansen slógu á létta strengi saman á jólatónleikum um helgina.

Söngvarinn Páll Óskar naut þess að vera „up close and personal“ á tónleikum í Háteigskirkju um helgina.

Förðunarfræðingurinn og TikTok stjarnan Embla Wiigum fór á viðburð á vegum Benefit Cosmetics.

Áhrifavaldurinn Helgi Ómarsson fór í brúðkaup til Dagnýjar og Davíðs.

Söngvarinn Bubbi Morthens er duglegur að deila því sem hentar honum vel þegar kemur að hreyfingu.

Kynnarnir Aron Már og Sigrún Ósk taka sig vel út saman. Idolið hóf göngu sína á föstudaginn og samkvæmt netverjum féllu ófá tár við áhorfið.

Söngvarinn Friðrik Ómar er tilbúinn í jólatörnina sem er að hefjast og ákvað að skella sér í nýjar brækur áður en hann fór upp á svið.

Áhrifavaldurinn Fanney Ingvarsdóttir fór á jólagleði. 

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, átti góðan dag með Sönnu Marin sem er yngsti forsætisráðherrann í sögu Finnlands.

Þjálfarinn Sandra Björg og Hilmar Arnarson njóta þess að vera búsett í Los Angeles og geta ferðast um Kaliforníu. 

Það eru aðeins nokkrir dagar í settan dag hjá Katrínu Eddu sem bíður eftir dóttur sinni.

Athafnamaðurinn Beggi Ólafs vitnar í lag Lord Huron og segir ferðina til Bandaríkjanna vera að breyta sér. 

Hundur raunveruleikastjörnunnar Sunnevu Einars, Bruce, fagnaði tíu ára afmælinu sínu. Hann fékk afmælisköku með kerti og gjöf í tilefni stóra dagsins.

Leikkonan Kristín Pétursdóttir rölti um Christianshavn í Danmörku.

Söngkonan GDRN og tónlistarmaðurinn Magnús Jóhann tóku upp lítið jólalag fyrir fylgjendur sína.


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: „Sá sem spottar bjórflöskuna fyrst fær fimmhundruð kall“

Stór tímamót eins og afmæli og edrú afmæli fengu að njóta sín á Instagram síðustu daga. Íslendingar virðast vera orðnir spenntir fyrir jólunum enda fyrsti í aðventu á sunnudaginn. Jólaseríur, skraut og einstaka jólatré eru meira að segja byrjuð að skjóta upp kollinum á samfélagsmiðlum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×