Erlent

Murdoch snýr baki við Trump

Samúel Karl Ólason skrifar
Rupert Murdoch er mjög áhrifamikill á hægri væng stjórnmála vestanhafs og víðar. Hann rekur stóra fjölmiðlasamsteypu sem inniheldur meðal annars Fox News, Wall Street Journal og Sky News.
Rupert Murdoch er mjög áhrifamikill á hægri væng stjórnmála vestanhafs og víðar. Hann rekur stóra fjölmiðlasamsteypu sem inniheldur meðal annars Fox News, Wall Street Journal og Sky News. EPA/DREW ANGERER

Rupert Murdoch er sagður hafa tilkynnt Donald Trump fyrrverandi forseta Bandaríkjanna að hann ætli ekki að styðja framboð hans til endurkjörs sem Trump tilkynnti um í gærkvöldi. Murdoch rekur stóra fjölmiðlasamsteypuna News Corp sem er mjög áhrifamikil á hægri væng stjórnmála víða um heim meðal annars í Bandaríkjunum.

Strax eru farin að sjást ummerki um að þessir fjölmiðlar hafi snúið baki við Trump.

Repúblikanar komu ekki vel út úr þingkosningunum vestanhafs fyrr í mánuðinum. Demókrötum tókst að bæta við sig sæti í öldungadeildinni og útlit er fyrir að Repúblikanar nái eingöngu naumum meirihluta í fulltrúadeildinni.

Frambjóðendum sem Trump studdi virðist hafa gengið sérstaklega illa í kosningunum og eftir það hafa sést augljós merki þess að fjölmiðlaveldi Murdochs hafi snúið baki við forsetanum fyrrverandi.

Sjá einnig: Trump lýsir yfir framboði

Í frétt Guardian er vísað til þess að í fjölmiðlum eins og Fox News, Wall Street Journal og New York Post hafi Trump verið harðlega gagnrýndur. Meðal annars hafi hann verið kallaður tapari og kennt um að draga Repúblikanaflokkinn í gegnum hver vandræðin á fætur öðrum.

Þá er haft eftir háttsettum starfsmanni fjölmiðlasamsteypu Murdochs að fjölmiðlakóngurinn hafi rætt við Trump og tilkynnt honum beint að hann stæði ekki lengur við bakið á honum.

Meðal annars má benda til nýlegrar forsíðu New York Post þar sem gert var grín að Trump. Á forsíðu dagblaðsins í dag segir svo smáum stöfum neðst að „Flórída-maður“ hafi verið með tilkynningu og að lesa mætti nánar um það á blaðsíðu 26.

Þá vakti athygli í gær að í umfjöllun Fox News um líklega frambjóðendur Repúblikanaflokksins var Trump ekki meðal þeirra þrettán sem nefndir voru.

Margir áhrifamenn innan Repúblikanaflokksins hafa einnig verið harðorðir í garð Trumps og gefið í skyn að nú sé nóg komið. Hann geti ekki leitt flokkinn áfram.

Lachlan Murdoch, sonur Ruperts, er sagður hafa rætt við Ron DeSantis, ríkisstjóra Flórída, og sagt honum að Murdochveldið styddi hann í komandi baráttu um tilnefningu Repúblikanaflokksins til forsetakosninganna 2024.

Það er að segja, ef DeSantis ákveður að bjóða sig fram. Hann þykir mjög líklegur til þess en hefur ekkert gefið upp enn.

Politicio segir að DeSantis hafi ekki tekið ákvörðun enn. Hins vegar bendi allt til að hann muni bjóða sig fram. Miðillin hefur eftir mönnum sem tengjast honum að DeSantis ætli að einbeita sér að því að vera ríkisstjóri og að yfirlýsing Trumps hafi í raun lítil áhrif á hann.

Sjá einnig: Vildi ekki binda sig við ríkisstjórastólinn

Einn ráðgjafi DeSantis sagði miðlinum að ríkisstjórinn muni verja næstu mánuðum í fylgjast með Trump „slá sjálfan sig í rot“.


Tengdar fréttir

Katie Hobbs lagði Kari Lake í Arizona

Katie Hobbs, frambjóðandi Demókrata í ríkisstjórakosningum í Arizona hefur verið útnefndur sigurvegari í kosningunum sem fram fóru á dögunum og reyndust afar tvísýnar.

„Repúblikanar hafa fylgt Donald Trump fram af klettabrún“

Áhrifamiklir Repúblikanar hafa ráðlagt Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, að fresta yfirlýsingu um nýtt forsetaframboð vegna slæms gengis flokksins í þingkosningunum á þriðjudaginn. Margir innan flokksins beina spjótum sínum að honum og þeim frambjóðendum sem hann studdi í kosningunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×