Bíó og sjónvarp

Brosnan í bleiku og meiri Mamma Mia á leiðinni

Elísabet Hanna skrifar
Pierce Brosnan segir þriðju Mamma Mia myndina vera mögulega.
Pierce Brosnan segir þriðju Mamma Mia myndina vera mögulega. Getty/David M. Benett

Leikarinn Pierce Brosnan hristi aðeins upp í fatavalinu sínu og mætti í bleikum jakkafötum á frumsýningu myndarinnar Black Adam. Brosnan verður sjötugur á næsta ári og er greinilega með puttann á púlsinum þegar kemur að tískunni en bleikur hefur verið áberandi í tískuheiminum.

Ofurhetjumynd

Mótleikari hans, Dwayne „The Rock“ Johnson, klæddist einnig bleiku en hann fer með aðalhlutverk myndarinnar sem Adam. The Rock hefur haft orð á því að hann sé spenntur að sjá Adam og Súperman mætast á hvíta skjánum í framtíðinni. Noah Centineo, Aldis Hodge, Sarah Shahi, Viola Davis og Quintessa Swinde fara einnig með hlutverk í ofurhetjumyndinni.

Leikararnir voru glæsilegir í bleiku.Getty/ David M. Benett

Önnur Mamma Mia mynd

Í viðtali við Good Morning America fyrr í mánuðinum segir leikarinn þriðju Mamma Mia myndina vera mögulega í framtíðinni. Mótleikari hans úr myndunum, Colin Firth, kom fram í sama þættinum í maí og sagðist þar vera til í að taka þátt í þriðju myndinni. „Ég er líka til, allan tímann, þetta ætti að vera þríleikur er það ekki?“ segir Brosnan um mögulegu þriðju myndina. 

„Það er glæpsamlegt hvað það er gaman að vera partur af myndinni, ég held að allir verði partur af henni,“ segir hann einnig. Að lokum segist hann vera nokkuð viss um að eitthvað sé í bígerð fyrir þriðju myndina.

 Aðrir aðstandendur myndarinnar, líkt og leikkonan Christine Baranski og framleiðandinn Judy Craymer, hafa einnig verið að gefa til kynna að þriðja myndin sé væntanlegt.

Í hlaðvarpinu Tjikk Tjatt er farið náið yfir Mamma Mia kvikmyndirnar en hægt er að nálgast þáttinn hér að neðan og í hlaðvarpsveitu Tals.


Tengdar fréttir

Bakvið tjöldin við tökur á Eurovision-myndinni

Kvikmyndin Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga kom út í lok júní en í henni fara stórleikarnir Wil Ferrell, Rachel McAdams og Pierce Brosnan með aðalhlutverkin.

Pierce Brosnan áritaði Golden Eye tölvuleik Björns

Kvikmyndin, Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga, verður frumsýnd í kvöld á Netflix, en þar verður Ísland sérstaklega áberandi enda aðalpersónur myndarinnar íslenskar.

Pierce Brosnan þakkar fyrir hlýjar móttökur Húsvíkinga

Pierce Brosnan virðist hafa verið ánægður með dvölina á Húsavík ef marka má nýja færslu á Instagram-reikningi hans. Írski stórleikarinn dvaldi um helgina á Húsavík ásamt stórstjörnunum Will Ferrell og Rachel McAdams.

Stjörnurnar minnast drottningarinnar

Stjörnurnar senda fallegar kveðjur til konungsfjölskyldunnar eftir að drottningin kvaddi þennan heim í gær. Elísabet II Bret­lands­drottning var 96 ára gömul þegar hún lést í Balmoral í Skotlandi. Heimurinn fygdist með þegar fjölskyldumeðlimir komu sér þangað til að vera við hlið hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×