Lífið

Stjörnulífið: Laxness, leður og Borat

Elísabet Hanna skrifar
Stjörnulífið er liður á Lífinu á Vísi þar sem farið er yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera síðustu daga.
Stjörnulífið er liður á Lífinu á Vísi þar sem farið er yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera síðustu daga. Instagram/Vísir

Úlpurnar eru komnar á kreik, hrekkjavöku skreytingar eru mættar í verslanir og pumpkin spice latte er orðið aðgengilegt á kaffihúsum. Haustið er að ná hápunkti. Myndir frá ferðalögum eru enn áberandi á Instagram og virðast Íslendingar æstir í að ná nokkrum sólargeislum.

Söngkonan Bríet óskar sínum heittelskaða Rubin Pollock, gítarleikara Kaleo, til hamingju með afmælið. „Hann málar heiminn litum,“ segir hún meðal annars.

Gummi Kíró deildi skemmtilegri mynd af sér ásamt Sólrúnu Diego og Frans í París. Þar voru þau stödd til þess að fara á tískusýningu þar sem vörumerki Línu Birgittu var sýnt.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra deildi mynd af rauða dreglinum.

Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens deilir ræktar rútínunni sinni. „Fasta 18 tíma er samt að borða allt,“ segir hann meðal annars um mataræðið. 

Skemmtikraftarnir og söngvararnir Friðrik Ómar og Jógvan Hansen héldu uppi urrandi stuði í Bolungarvík.

Athafnakonan Ása Reginsdóttir er tilbúin í hlaup dagsins á Ítalíu.

Áhrifavaldurinn Camilla Rut reyndi að gera gott úr rokinu. „Verð ég ein af ✨ pink ladies ✨ í Grease sýningunni í höllinni 29.okt? Kannski.. Er ég byrjuð að hita upp leðurbuxurnar fyrir giggið? Mögulega..“ Skrifaði Camilla einnig undir annað myndband af buxunum. 

Rapparinn Herra Hnetusmjör er kátur með nýja stellið sitt.

Skemmtikrafturinn Eva Ruza hélt uppi fjörinu á 53.000 manna íþróttaleikvangi ásamt kollega sínum Hjálmari Erni. 

Söngkonan Svala Björgvinsdóttir tekur sig vel út sem partur af Reykjavíkurdætrum. 

Raunveruleikastjarnan Sunneva Einarsdóttir er ávallt glæsileg. 

Söngkonan Jóhanna Guðrún henti í einn stút fyrir fylgjendur sína.

Áhrifavaldurinn Helgi Ómarsson nýtur sín í Asíu.

Söngvarinn Aron Can er mættur til Amsterdam.

Leikkonan Kristín Pétursdóttir tók sér smá pásu til þess að slaka á.

Athafnakonan Tanja Ýr spyr hvort hún eða Borat beri sundfötin betur.

Söngkonan og Idol dómarinn Birgitta Haukdal fær aldrei nóg af fléttunum. 

Leikkonan Þórdís Björk hlotnaðist sá heiður að lesa Sölku Völku eftir Halldór Laxness á hljóðbók. „Textinn er svo magnaður að ég fékk endurtekið gæsahúð, tár í augun og kökk í hálsinn. Og það er alveg sama hversu oft ég les þessa bók, það er alltaf jafn magnað og ótrúlegt hvernig höfundi tekst að hafa svona gífurlega mikla innsýn inní manneskjuna og alla hennar bresti,“ segir Þórdís meðal annars.

Hljómsveitin Kaleo heldur áfram að ferðast um heiminn og spila. 

Leikkonan Íris Tanja er tilbúin í haustið.

Áhrifavaldurinn Erna Hrund Hermannsdóttir deildi múmínbollasafninu sínu sem nálgast sjöunda tug.

Þjálfarinn Sandra Björg Helgadóttir heldur áfram að njóta lífsins í Los Angeles

Leikkonan Nína Dögg Filippusdóttir elskar að róla á Bali.

Áhrifavaldurinn Svanhildur Heiða og makinn hennar Magnús Már Guðjónsson eiga von á dreng.

Söngvarinn Jón Jónsson deildi mynd af sér og bróður sínum Friðrik Dór í tilefni leiks sem þeir voru með í tengslum við tónleikanna sem þeir halda í Kaplakrika í desember. 

LXS raunveruleikastjarnan Magnea Björg Jónsdóttir er alsæl með bílakjallarann eftir að það byrjaði að kólna í veðri.


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Bleika slaufan, RIFF og Gyða Sól

Íslendingar eru búnir að draga fram úlpurnar og fara hvað á hverju að fjárfesta í sköfum fyrir veturinn. Haustlitir einkenna samt tískuna þessa dagana og þykkar kápur, treflar og kaffibollar eru algeng sjón á Instagram. Listamenn landsins eru að dæla út nýju og spennandi efni og haustið fer vel af stað. 

Stjörnulífið: Eddan, kynjaboð og hundrað mílur

Eddan átti hug og hjörtu landsmanna á sunnudagskvöldið þar sem verðlaun voru veitt fyrir íslenskt sjónvarpsefni. Ítalía heldur áfram að vera vinsæll áfangastaður hjá ferðaþyrstum Íslendingum og listamenn vinna að nýju efni fyrir veturinn. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×