Viðskipti innlent

Bein út­sending: Tengjum ríkið – staf­ræn fram­tíð hins opin­bera

Atli Ísleifsson skrifar
Hægt verður að fylgjast með streymi úr öllum sölum í spilunum að neðan.
Hægt verður að fylgjast með streymi úr öllum sölum í spilunum að neðan.

Ráðstefna um stafræna framtíð hins opinbera fer fram í Hörpu í dag. Ráðstefnan hefst klukkan 12:30 og stendur til klukkan 17 í og verður hægt að fylgjast með henni í beinu streymi hér á Vísi.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra mun flytja opnunarerindi ráðstefnunnar en auk þess munu Andri Heiðar Kristinssson, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands, Dr. Silvija Seres stærðfræðingur og fjárfestir, og Kevin Cunningham, fyrrverandi forstjóri GDS (Government Digital Services) í Bretlandi halda tölu.

„Eftir hlé skiptist dagskráin í þrjár línur, Þjónustu, Þróun og Tækifæri. Í Þjónustu verður áhersla á stafræna þjónustu stofnana. Í Þróun verður aðeins kafað á dýptina og stafrænar lausnir sem í boði eru skoðaðar. Tækifæri eru hugsuð sem brú milli opinberra aðila og einkageirans með sérstakri áherslu á öryggi og nýsköpun,“ segir um viðburðinn, en streymt verður beint úr öllum sölum að neðan.

Þjónusta

Erindi í Þjónustu eru hugsuð fyrir forstöðumenn, stafræna leiðtoga og rekstrarstjóra hjá stofnunum þó allir áhugasamir séu velkomnir. Erindin eru hugsuð til fræðslu og upplýsinga fyrir þau sem leiða stafræna vegferð innan stofnana en eiga sömuleiðis við langt út fyrir stjórnsýslu.

Markmiðið er að veita innblástur og opna á þau tækifæri sem standa stofnunum til boða í stafrænni vegferð.

Fundarstjóri í Þjónustu er Kristjana Arnarsdóttir íþróttafréttamaður.

  • 12.30 Opnunarávarp ráðherra. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra
  • 12.45 Stafræn skref inn í framtíðina. Andri Heiðar Kristinsson, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands
  • 13.05 The New Normal for Iceland. Silvija Seres, mathematician, board member and investor
  • 13.45 Digital Leaders Study Launch. Kevin Cunnington, Former Digital Envoy for the UK and Director General of the Government Digital Service.
  • 14.30 Kaffihlé
  • 15.00 Landspítalaapp – skjólstæðingurinn í öndvegi. Adeline Tracz, verkefnastjóri nýþróunar hjá Heilbrigðis- og upplýsingatæknideild Landspítala.
  • 15.15 DPS – Hýsing og rekstur – Skýjalausnir. Sigrún Svava Valdimarsdóttir, sérfræðingur – stefnumótandi innkaup hjá Ríkiskaupum
  • 15.30 Hvernig verður stafræn vegferð til? Reynslusaga frá Sjúkratryggingum. Kristján Þorvaldsson, sviðsstjóri upplýsingatæknisviðs Sjúkratrygginga
  • 15.45 Frá faxi til framtíðar. Anna Sigríður Vilhelmsdóttir, verkefnastjóri á upplýsingatæknisviði Fiskistofu
  • 16.00 Fjármögnun umbóta. Guðrún Birna Finnsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu stjórnunar og umbóta í fjármála- og efnahagsráðuneytinu
  • 16.15 Stafræn vegferð Samgöngustofu. Lárus Long, deildarstjóri upplýsingatæknideildar Samgöngustofu
  • 16.30 Stafræn skref stofnana – viðurkenning
  • 16.45 Ráðstefnulok

Þróun

Erindi hér eru hugsuð fyrir tæknistjóra, stafræna leiðtoga, forritara og tæknifólk hjá stofnunum en öll áhugasöm eru velkomin. Erindin fara meira á dýptina og eru tæknilegri en í Þjónustu en jafnframt hugsuð til fræðslu og upplýsinga fyrir þau sem leiða stafræna vegferð innan stofnana. Öllum er velkomið að fylgjast með hér enda erindi sem eiga við langt út fyrir stjórnsýslu og tækniumhverfi.

Markmiðið er að veita innblástur og vekja athygli á þeim þjónustum sem standa stofnunum til boða hjá Stafrænu Íslandi.

Fundarstjóri í Þróun er Hjálmar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri Grid.

  • 15.00 Innskráning fyrir alla. Gunnar Ingi Reykjalín Sveinsson, vörustjóri hjá Stafrænu Íslandi, Sævar Már Atlason, sérfræðingur hjá Aranja
  • 15.15 Mínar síður – verkefnasaga. Ragnhildur H. Ragnarsdóttir, vörustjóri Stafræns Íslands, Ragnheiður Þorleifsdóttir & Ásdís Erna Guðmundsdóttir, Hugsmiðjan
  • 15.30 Ríkið í vasanum – Ísland.is appið og stafræn skírteini. Sigurbjörn Reginn Óskarsson, vörustjóri hjá Stafrænu Íslandi
  • 15.45 Umsóknarkerfi Ísland.is. Vésteinn Viðarsson, vörustjóri hjá Stafrænu Íslandi
  • 16.00 Stafrænt pósthólf – Lausnin, lögin og leiðin. Hólmfríður Sigríður Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá Stafrænu Íslandi
  • 16.15 Vefir stofnana – Öll á sömu síðu. Kolbrún Eir Óskarsdóttir, verkefnastjóri hjá Stafrænu Íslandi, Bergvin Gunnarsson, verkefnastjóri hjá Stefnu
  • 16.30 Stafræn skref stofnana – viðurkenning
  • 16.45 Ráðstefnulok

Tækifæri

Erindi hér eru hugsuð sem brú milli stjórnsýslu og atvinnulífs með áherslu á öryggi , nýsköpun og tækni. Erindin koma úr ólíkum áttum og ætlað að fræða og upplýsa þau sem koma að og hafa áhuga á stafrænni þróun. Öllum er velkomið að fylgjast með því sem fram fer fram í Tækifæri enda erindi sem eiga við allar greinar atvinnulífsins sem og stjórnsýsluna.

Markmiðið er að veita innblástur og vekja athygli á þeim þjónustum sem standa stofnunum til boða hjá Stafrænu Íslandi.

Fundarstjóri í Tækifæri er Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannís.

  • 15.00 Auðkennisappið – rafræn skilríki. Haraldur A. Bjarnason, framkvæmdastjóri Auðkennis
  • 15.15 Tengjum ríkið – Við hvað og til hvers? Sverrir Geirdal, viðskiptaþróunarstjóri hjá Auðnu, verðandi forstöðumaður Miðstöðvar stafrænnar nýsköpunar (EDIH)
  • 15.30 Verjum stafrænu byltinguna. Guðmundur Arnar Sigmundsson, sviðsstjóri netöryggissveitarinnar CERT-IS
  • 15.45 Tölvuöryggismenning, skiptir hún máli? Ragnar Sigurðsson, öryggissérfræðingur og meðstofnandi AwareGo
  • 16.00 Tækifæri í skipulagi og árangursríkt samstarf. Hrefna Lind Ásgeirsdóttir, tækni- og þróunarstjóri hjá Stafrænu Íslandi, Eiríkur Nilsson, tæknistjóri Aranja
  • 16.15 Vaxtarmöguleikar Íslands liggja í hugviti og tækni. Jarþrúður Ásmundsdóttir, fagstjóri hugvits, nýsköpunar og tækni hjá Íslandsstofu
  • 16.30 Stafræn skref stofnana – viðurkenning
  • 16.45 Ráðstefnulok




Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×