Erlent

Tveggja ára fangelsi fyrir að hæðast að drottningunni

Bjarki Sigurðsson skrifar
Frá mótmælunum sem konan var ákærð fyrir.
Frá mótmælunum sem konan var ákærð fyrir. EPA/Diego Azubel

Taílenskur aðgerðasinni var í gær dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að mótmæla á götum Bangkok, klæddur sem drottningin. Dómurinn mat það sem svo að aðgerðasinninn hafi verið að hæðast að drottningunni með því að klæðast sem hún.

Umrædd mótmæli áttu sér stað árið 2020 þar sem verið var að mótmæla yfirvöldum landsins og krafist endurskipulagningar á konungsstjórn landsins. Ein þeirra sem mótmæltu var kona sem klæddi sig í gervi drottningarinnar.

Drottningin er þriðja eiginkona konungs Taílands.Getty/Guillaume Payen

Konan heitir Jatuporn Saeoueng og er 25 ára gömul. Hún þarf þó að dúsa í fangelsi þar til hún er orðin 27 ára vegna atviksins eftir að hafa í gær verið dæmd til tveggja ára fangelsisvistar. Saeoueng sagðist einungis vera að klæðast hefðbundnum taílenskum kjól og að hún hafi ekki með neinum hætti verið að reyna að móðga drottninguna.

Alls hafa 210 aðgerðasinnar verið handteknir í Taílandi síðustu tvö ár fyrir að móðga konungsfjölskylduna í landinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×