Erlent

Liz Truss verður næsti for­sætis­ráð­herra Bret­lands

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Liz Truss hefur verið kjörin nýr leiðtogi Íhaldsflokks Bretlands.
Liz Truss hefur verið kjörin nýr leiðtogi Íhaldsflokks Bretlands. EPA-EFE/Neil Hall

Liz Truss utanríkisráðherra Bretlands bar sigur úr býtum í baráttunni um leiðtogasæti Íhaldsflokksins í Bretlandi. Niðurstöður leiðtogakjörsins voru tilkynntar nú rétt fyrir hádegi og verður Truss því næsti forsætisráðherra landsins.

Truss hafði betur í baráttunni gegn Rishi Sunak, fyrrverandi fjármálaráðherra, en stjórnmálarýnendur gerðu alltaf ráð fyrir að Truss hefði betur. Ráðgert er að fyrsta verkefni Truss í embætti verði að bregðast við hækkandi verðlagi en hún hefur ýjað að því að það verði gert með skattalækkunum. Þá gera stjórnmálaskýrendur breska ríkisútvarpsins ráð fyrir að strax á fimmtudag muni Truss tilkynna áætlun um viðbrögð við hækkandi orkuverði.

Alls voru 172.437 flokksmenn á kjörskrá og 82,6 prósent þeirra greiddu atkvæði í kosningunni. Sunak hlaut 60.399 atkvæði og Truss hlaut 81.326 atkvæði.

Boris Johnson fráfarandi forsætisráðherra tilkynnti afsögn sína í júlí eftir miklar deilur innan flokksins en nokkrir ráðherrar í ríkisstjórn hans höfðu sagt af sér vegna óánægju með formennsku hans. Johnson hefur verið forsætisráðherra síðan árið 2019 þegar hann tók við embættinu af Theresu May.

Þó svo að breytingar séu yfirvofandi á bresku ríkisstjórninni og líklegt að margir nýir taki við ráðherraembætti þýðir það ekki endilega að þingkosningar séu á næsta leiti. Það er alfarið undir nýjum forsætisráðherra komið hvað gert verður. 

Þegar May tók til að mynda við embættinu af David Cameron árið 2016 ákvað hún að blása ekki til þingkosninga þegar í stað. Truss sagði í sigurræðu sinni að þingkosningar verði næst árið 2024.

Leiðtogakosningarnar hafa verið langt ferli, nærri tveir mánuðir eru liðnir síðan Johnson tilkynnti afsögn sína. Kosningarnar fóru fram í sex umferðum og var tilkynnt um niðurstöðu síðustu umferðar í dag. Þeir sem duttu út úr leiðtogaslagnum voru; Nadhim Zahawi þingforseti, sem datt út í fyrstu umferð; Jeremy Hunt fyrrverandi heilbrigðisráðherra, sem datt út í fyrstu umferð; Suella Braverman ríkissaksóknari, sem datt út í annarri umferð; Tom Tugendhat formaður utanríkismálanefndar, sem datt út í þriðju umferð; Kemi Badenoch fyrrverandi jafnréttismálaráðherra, sem datt út í fjórðu umferð; og Penny Mordaunt viðskiptaráðherra, sem datt út í fimmtu umferð. 

Johnson og Truss munu leggja leið sína til Balmoral í Skotlandi á morgun, þar sem Elísabet Bretadrottning heldur til þessa dagana. Johnson fer þar á sinn síðasta fund með drottningunni sem forsætisráðherra og Truss á sinn fyrsta en það er í verkahring Elísabetar að skipa nýjan forsætisráðherra í embætti. 

Þetta verður fyrsta skipti á sjötíu ára valdatíð Elísabetar sem nýr forsætisráðherra er ekki settur í embætti í Buckingham höll en vegna heilsubrests á drottningin erfitt með ferðalög. 


Tengdar fréttir

Tek­ur ekki á móti nýj­um for­sæt­is­ráð­herr­a í Buck­ing­ham-höll í fyrst­a sinn í sjö­tí­u ár

Elísabet Bretadrottning mun ekki taka á móti nýjum forsætisráðherra í Buckingham-höll í Lundúnum og er það í fyrsta sinn í sjötíu ára valdatíð drottningarinnar. Þess í stað mun nýr forsætisráðherra, hvort sem það verður Liz Truss eða Rishi Sunak sem vinnur leiðtogakjör Íhaldsflokksins, ferðast til Skotlands þann 6. september og hitta drottninguna þar.

Hættu­á­stand sé yfir­vofandi í orku­málum í Bret­landi

Forstjóri bresku orkuyfirlitsstofnunarinnar Ofgem segir hættuástand yfirvofandi fyrir bresk heimili hvað varðar verð á gasi í landinu. Heimilin geti búist við 80 prósenta hækkun að meðaltali á verði á ári frá október og mögulega aftur í janúar á næsta ári. Hækkunin sem er spáð nemur 3.549 pundum á ári.

Sunak og Truss ein eftir

Einungis tveir eru eftir í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins í Bretlandi og keppninni um forsætisráðherraembættið. Penny Mordaunt heltist úr lestinni í dag og því standa þau Rishi Sunak og Liz Truss ein eftir.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×