Sport

„Mér fannst þetta leiðinlegur og lélegur leikur“

Andri Már Eggertsson skrifar
Gunnar Magnús var afar svekktur eftir leik 
Gunnar Magnús var afar svekktur eftir leik  vísir/vilhelm

Keflavík tapaði 0-2 gegn Selfossi í 14. umferð Bestu deildar-kvenna. Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari Keflavíkur, var hundfúll eftir leik.

„Selfoss spilaði miklu betur en við í kvöld. Ég lofaði skemmtilegum leik í viðtali fyrir leik en svo var ekki og mér fannst þetta leiðinlegur og lélegur leikur hjá okkur,“ sagði Gunnar Magnús og hélt áfram.

„Mér fannst vera mikið andleysi í okkar leik sem ég á erfitt með að skilja. Við vorum í vandræðum í vikunni þar sem við lentum í meiðslum og náðum ekki að æfa af sama krafti og í síðasta leik sem endurspeglaðist í þessum leik.“

Brenna Lovera kom Selfossi yfir strax á þriðju mínútu og átti Keflavík í miklum vandræðum með að svara því.

„Það er alltaf vont að fá á sig mörk og leikskipulagið breytist þegar maður fær á sig mark snemma. Við áttum bara ekki möguleika í þessum leik og ef það væri ekki fyrir markmanninn okkar þá hefðum við tapað stærra.“

„Þrátt fyrir að Selfoss fór mikið upp hægri kantinn sýndi Sigurrós [Eir Guðmundsdóttir] mikinn dugnað í vinstri bakverðinum og gaf ekkert eftir. Aðrar í liðinu hefðu mátt fylgja hennar fordæmi.“

Gunnar hefði viljað sjá Keflavík halda betur í boltann marki undir sem hefði gefið liðinu tækifæri á að jafna leikinn.

„Við náðum ekki að halda nógu vel í boltann og þegar við unnum boltann þá misstum við hann strax aftur þegar Selfoss setti okkur undir pressu. Þetta var bara bitlaust og lélegt,“ sagði Gunnar Magnús Jónsson að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×