„Það er leitt að Drífa Snædal hafi notað tækifærið, um leið og hún tilkynnti tímabæra afsögn sína, til að hnýta með ómálefnalegum hætti í mig og stjórn Eflingar. Drífa veit sjálf að það er langt um liðið síðan grafa fór undan trúverðugleika hennar og stuðningi í baklandi verkalýðshreyfingarinnar,“ svona hefst harðorð færsla Sólveigar Önnu Jónsdóttur á Facebook þar sem hún bregst við afsögn Drífu Snædal, fráfarandi forseta ASÍ. Ekki náðist í Sólveigu Önnu í morgun þegar leitað var eftir viðbrögðum hennar við afsögn Drífu.
Þær hafa eldað grátt silfur saman, Sólveig og Drífa og tókust þær meðal annars á um hópuppsagnir Eflingar í vor. Í yfirlýsingu segist Drífa hafa verið knúin til að gagnrýna þær uppsagnir og segir Sólveigu hafa sett sig í stöðu sem hún hafi aldrei ætlað sér.
Kosið sig inn í blokk Gylfa Arnbjörnssonar
Í yfirlýsingunni segir Drífa þá blokkamyndun sem hafi átt sér stað, hafa gert sér það ókleift að starfa áfram sem forseti ASÍ, en þar vísar Drífa til samstarfs Sólveigar og Ragnars Þórs Ingólfssonar, formanns VR meðal annars, en samskiptin við þau urðu Drífu undir lok óbærileg. Sólveig brást við þessum yfirlýsingum í færslunni:
„Staðreyndin er sú að Drífa kaus sjálf að loka sig inni í blokk með nánasta samstarfsfólki forvera síns, Gylfa Arnbjörnsonar, og þeirri stétt sérfræðinga og efri millistéttarfólks sem ræður ríkjum í stofnunum ríkisvaldsins á Íslandi og einnig á skrifstofum Alþýðusambandsins. Uppruni, bakland og stuðningshópar Drífu voru í stofnana-pólitík og í íhaldsarmi verkalýðshreyfingarinnar, hjá fólki eins og Halldóru Sveinsdóttur formanni Bárunnar. Drífa gat aldrei stutt við það umbreytingaverkefni og endurnýjun sem ég, Ragnar Þór Ingólfsson og Vilhjálmur Birgisson höfum leitt með stuðningi mikils fjölda félagsfólks í okkar félögum um land allt. Það er staðreynd.“
Hér má lesa yfirlýsingu Sólveigar í heild sinni.
Ekki viljað taka slaginn
Sólveig sakar Drífu jafnframt um að hafa ekki viljað taka slaginn í ýmsum málefnum.
„Drífa Snædal vildi semja við ríkisstjórnina og SA um að hafa af verka- og láglaunafólki umsamdar launahækkanir í kórónaveirukreppunni. Og það hefði orðið raunin ef ekki hefði verið fyrir andstöðu Eflingar. Drífa vildi heldur ekki "taka slaginn" þegar Icelandair braut lög um stéttarfélög og vinnudeilur til að nauðbeygja flugfreyjur í miðri kjaradeilu - hún stöðvaði málssókn fyrir Félagsdómi og undirritaði þess í stað skammarlega hvítþvottaryfirlýsingu. Drífa tók heldur ekki slaginn um viðurlög gegn launaþjófnaði, heldur reyndi í tvígang að bera á borð fyrir aðildarfélög ASÍ handónýta lagasetningu þar sem staða fórnarlamba launaþjófnaðar hefði orðið verri en hún er nú.“
Þá segir Sólveig Drífu hafa skort baráttuanda og segir vinnubrögð hennar hafa verið andlýðræðisleg og vakið undrun langt út fyrir raðir VR og Eflingar.
„Leiðtogar eiga að hlusta á vilja þeirra sem þeir eiga umboð sitt undir. Það hefði Drífa Snædal getað gert á fyrri stigum en kaus að gera ekki,“ segir að lokum í yfirlýsingunni.