Golf

Ólafía nálgast Perlu | Spennandi lokadagur fram undan

Valur Páll Eiríksson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir Mynd/seth@golf.is

Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir átti stórgóðan hring á þriðja degi Íslandsmótsins í golfi í Vestmannaeyjum í dag. Lengi vel var útlit fyrir að hún tæki forystu en hún er aðeins höggi á eftir hinni 15 ára gömlu Perlu Sól Sigurbrandsdóttur sem hefur leitt mótið frá fyrsta degi.

Perla Sól hefur leitt frá því að fyrsta hring lauk á fimmtudagskvöldið. Hún var með þriggja högga forystu fyrir daginn en hún fór fyrstu tvo hringina á pari.

Hún gerði höggi betur í dag er hún lék hringinn á höggi undir pari og er það því hennar skor eftir þrjá hringi. Perla Sól fékk þrjá fugla og tvo skolla á hringnum en lék aðrar holur á pari.

Ólafía Þórunn er einu höggi á eftir Perlu, á pari, eftir hring dagsins. Ólafía fékk fimm fugla á fyrstu 13 holum dagsins en skollar á 16. og 17. braut þýða að hringurinn var á þremur undir parinu.

Íslandsmeistari áranna 2018 til 2020, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, fór hring dagsins á tveimur yfir pari og er hún þriðja á níu yfir pari vallar í heildina. Ljóst er því að Perla Sól og Ólafía Þórunn munu bítast um Íslandsmeistaratitilinn á lokadeginum á morgun.

Hulda Clara Gestsdóttir, Íslandsmeistari síðasta árs, lék kvenna best á vellinum í dag. Hún fór hringinn á fimm höggum undir pari, sem er nýtt vallarmet af bláum teigum. Strembnir fyrstu tveir dagar á mótinu þýða að hún er í sjöunda sæti á 13 yfir pari eftir þrjá hringi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×