Sport

Dagskráin í dag: Dregið í Meistaradeildinni og einn leikur í Bestu-deild karla

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
KR-ingar fara norður á Akureyri þar sem liðið heimsækir KA.
KR-ingar fara norður á Akureyri þar sem liðið heimsækir KA. Vísir/Hulda Margrét

Boðið verður upp á tvær beinar útsendingar á sportrásum Stöðvar 2 í dag til að koma íþróttalífinu í gang eftir verslunarmannahelgina.

Klukkan 11:00 verður dregið í fjórðu og seinustu umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2. Tvö Íslendingalið verða í pottinum, norsku meistararnir í Bodö/Glimt og danska liðið Midtjylland.

Þá er einn leikur á dagskrá í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld þegar KA tekur á móti KR á Greifavellinum á Akureyri. Bein útsending hefst klukkan 17:50 og verður leikurinn sýndur á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×