Lífið

Stjörnulífið: Ítalía, barneignir og árshátíð í höll

Elísabet Hanna skrifar
Það eru flestir á ferð og flugi í Stjörnulífinu þessa vikuna.
Það eru flestir á ferð og flugi í Stjörnulífinu þessa vikuna. Samsett/Instagram

Það birtir svo sannarlega yfir skemmtanalífi landsins með hækkandi sól svo mikið er um að vera hjá listamönnum landsins. Systurnar eru mættar til Tórínó þar sem þær munu keppa í Eurovision og margir virðast vera að skella sér til útlanda. 

Leikkonan Íris Tanja Flygenring fylgdi kærustunni sinni Elínu Eyþórsdóttur áleiðis til Tórínó þar sem hún mun keppa í Eurovision fyrir hönd Íslands. 

Bríet naut lífsins í Madríd í glæsilegum fötum sem Sædís Ýr hannaði.

Rithöfundurinn og þjálfarinn Beggi Ólafs skellti sér til útlanda með sjálfum sér þar sem hann var að skrifa, njóta og slaka á.

Áhrifavaldurinn Fanney Dóra stillti sér upp í fallegu umhverfi.

Svala heldur áfram af fullum krafti í tónlistinni og skrifaði undir nýjan samning við Öldu Music fyrir helgi. Svala grínaðist með það að Sósa hefði verið svekkt að fá ekki voffasamning við sama tilefni. Hún flutti í síðustu viku í nýja íbúð en fram hefur komið að sambandi hennar við Kristján Einar Sigurbjörnsson er lokið.

Jógvan, Sigga Beinteins og Guðrún Gunnars fóru með fjörið beint til Akureyrar þar sem þau tóku nokkur lög.

Þáttastjórnandinn og leikkonan Kristín Pétursdóttir var græn og væn á Spáni.

Æðstu skvísurnar Birgitta Haukdal, Edda Hermannsdóttir, Sigrún Ósk og Ragnhildur Steinunn fögnuðu afmæli saman. 

Systurnar Sigga, Beta og Elín finna fyrir Eurovision ástinni í loftinu þar sem þær eru mættar til Ítalíu fyrir keppnina.

Tónlistarsnillingarnir Magnús Jóhann og GDRN voru að gefa út nýtt lag sem verður á væntanlegri plötu þeirra sem kemur í haust en tónlistin leyfir píanóinu og söngnum að njóta sín, án vesens.

Jón Jónsson og Hafdís Björk Jónsdóttir bíða spennt eftir sínu fjórða barni saman.

Förðunarfræðingarnir Heiður Ósk og Ingunn Sigurðardóttir voru með opnunarpartý fyrir nýjan og endurbættan Reykjavík Makeup School sem þær áttu áður með förðunarfræðingunum Sigurlaugu Dröfn Bjarnadóttur og Söru Dögg Johansen. Þær fögnuðu allar saman um helgina ásamt fleirum í fallegu rými sem þær Heiður og Ingunn hafa verið að gera upp síðustu vikur. 

Guðrún Sørtveit á von á litlum dreng en fyrir eiga þau Steinar Örn Gunnarsson eina dóttur, Áslaugu Rún.

Björg Magnúsdóttir hélt til Tórínó ásamt fríðu föruneyti beint.

Hlöðuball Sjálfstæðismanna fór fram um helgina í Víðidal þar sem það var líf og fjör og dansað fram á kvöld. 

Herra Hnetusmjör elskar 203 enda stjórinn þar.

Erna Hrund nýtur þess að sýna Lottu heiminn en þær mæðgur eru staddar í Prag þar sem árshátíð Ölgerðarinnar fór fram í kastala um helgina.

Grínistarnir Eva Ruza og Hjálmar Örn voru konungsbornir skemmtikraftar á fyrrnefndri árshátíð Ölgerðarinnar í Prag. 

Birgitta Líf naut sín á sólríkum sunnudegi þar sem hún gæddi sér á brunch og skálaði í mimosu. 

Selma Björnsdóttir var glamúrinn uppmálaður um helgina. 

Sunneva Einar óskaði sinni allra bestu Jóhönnu Helgu Jensdóttur til hamingju með afmælið en þær hafa brallað mikið saman síðustu tíu árin.

Fatahönnuðurinn og áhrifavaldurinn Camilla Rut skellti sér til Ítalíu og þakkaði líkamanum sínum fyrir alla stórkostlegu hlutina sem hann hefur gert fyrir hana.

Tónlistarmaðurinn Aron Can er þarna úti að lifa sínu besta lífi.

Rúnar Frey er búinn að vera allsgáður í tíu ár og er þakklátur fyrir þá stefnu sem hann hefur tekið í lífinu.

Tónlistarmaðurinn Daði Freyr er að ferðast um víðan völl á tónleikaferðalagi en hann er kominn aftur til Evrópu eftir að hafa ferðast um Bandaríkin þar sem hann var að koma fram og skemmta. 

Leik- og söngkonan Þórdís Björk kveður sýninguna Skugga Svein í bili sem var í sýningu á Akureyri. 

Það er brjálað að gera hjá listafólki landsins og Eyþór Ingi er svo sannarlega dæmi um það. Söngvarinn magnaði kom fram í tveimur sýningum Skilaboðaskjóðunnar í Eldborg á laugardaginn. Í framhaldinu var hann á þeytingi á milli skemmtana langt fram eftir kvöldi og inn í nóttina. Svefn hefur eflaust verið ofarlega í huga Eyþórs Inga en kappinn var mættur aftur í Hörpu á sunnudeginum til að fara með hlutverk Imma ananas í Ávaxtakörfunni.


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Súkkulaði, sól og frumsýningar

Páskahelgin var yfirfull af súkkulaði og góðum samverustundum með fjölskyldu og vinum. Einhverjir skelltu sér í bústað eða jafnvel út fyrir landsteinana og flestir landsmenn fengu gott veður líka sem er einstaklega gott fyrir geðheilsuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×