Innherji

Marel ræðst í yfirtöku á bandaríska félaginu Wenger fyrir 70 milljarða

Hörður Ægisson skrifar
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels, segir fyrirtækjamenningu og framtíðarsýn félaganna passa vel saman. Á síðustu árum hafi Wenger náð góðri markaðsstöðu í ört vaxandi iðnaði fyrir vinnslu plöntupróteina fyrir neytendamarkað.
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels, segir fyrirtækjamenningu og framtíðarsýn félaganna passa vel saman. Á síðustu árum hafi Wenger náð góðri markaðsstöðu í ört vaxandi iðnaði fyrir vinnslu plöntupróteina fyrir neytendamarkað.

Marel hefur undirritað samning um kaup á bandaríska fyrirtækinu Wenger Manufacturing, sem er leiðandi á heimsvísu í framleiðslu á hátæknilausnum fyrir matvælavinnslu fyrir gæludýr, plöntuprótein, og fóður fyrir fiskeldi. Heildarkaupverðið, sem verður greitt með reiðufé og lánalínum, er 540 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði rúmlega 70 milljarða íslenskra króna.

Greint er frá þessu í tilkynningu til Kauphallarinnar en kaupin eru sögð mikilvægt skref inn á nýja og spennandi vaxtarmarkaði og mynda fjórðu tekjustoð Marels, til viðbótar við alifugla-, kjöt- og fiskiðnað. Gert er ráð fyrir að nýtt tekjusvið muni skila 10 prósent af tekjum og 12 prósent af sameiginlegri EBITDA-framlegð hjá sameinuðu félagi.

Marel er langsamlega stærsta fyrirtækið í Kauphöllinni hér á landi með markaðsvirði upp á um 540 milljarða króna.

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels, segir í tilkynningunni að félagið sjái „mikil tækifæri til vaxtar og virðisaukningar með því að virkja alþjóðlegt sölu- og þjónustunet Marel til að sinna ört vaxandi markaði fyrir plöntuprótein og fóður. Tæknilausnir og vöruframboð falla vel saman og munu hraða vegferð okkar að bjóða heildarlausnir til þjónustu á þessum nýju og spennandi vaxtarmörkuðum. Hér munu stafrænar lausnir Marel spila lykilhlutverk, auk vélbúnaðar sem passar vel framan og aftan við tæknilausnir Wenger í framleiðslukeðjunni, þ.e. við grunnstig framleiðslu og vinnslu fullbúinna vara.“

Tæknilausnir og vöruframboð falla vel saman og munu hraða vegferð okkar að bjóða heildarlausnir til þjónustu á þessum nýju og spennandi vaxtarmörkuðum.

Wenger var stofnað árið 1935 en starfsmenn félagsins í dag eru um 500 talsins. Áætlaðar árstekjur félagsins fyrir 2022 nema 190 milljónum dala, EBITDA er áætlað 32 til 35 milljónir dala og EBIT-framlegð 14 til 15 prósent. Heildarkaupverðið í viðskiptunum er 14 sinnum EBITDA að teknu tilliti til væntra jákvæðra skattalegra áhrifa að fjárhæð 60 til 70 milljónir dala.

Í tilkynningunni kemur fram að félögun muni saman geta mætt aukinni eftirspurn eftir hagkvæmum og sjálfbærum matmælum og fóðri á heimsvísu.

„Stefna og fyrirtækjamenning félaganna tveggja falla afar vel saman, og það sama gildir um vöruframboð og landfræðilega dreifingu, sem skapar góðan grundvöll fyrir frekari vöxt. Wenger deilir metnaði Marel fyrir nýsköpun og vöruþróun á hátæknilausnum, þar sem árangur er drifinn áfram af metnaðarfullum hópi starfsmanna og þéttu samstarfi við viðskiptavini. 

Wenger hefur fjölbreyttan og tryggan viðskiptavinahóp, allt frá sprotafyrirtækjum með áherslu á plöntuprótein til stórra alþjóðlegra framleiðenda gæludýrafóðurs. Þetta hefur skilað sér í góðri arðsemi, sterku sjóðstreymi og traustri ávöxtun fjármagns. Með því að byggja á alþjóðlegu sölu- og þjónustuneti Marel og stafrænum lausnum, eru félögin tvö vel í stakk búin að skapa tækifæri til frekari vaxtar,“ að því er segir tilkynningunni.

Alþjóðlegur markaður fyrir gæludýrafóður er metinn á yfir 100 milljarða evra og markaður fyrir fiskeldisfóður á yfir 50 milljarða evra, en árlegur vöxtur þeirra er áætlaður um 5 til 6 prósent. Markaður fyrir plöntuprótein er um 7 milljarðar evra og er áætlað að hann vaxi um 15 til 20 prósent árlega.

Markaðstækifæri Marel og Wenger fyrir lausnir og þjónustu á sviði gæludýrafóðurs, plöntupróteins og fiskeldisfóðurs, að því er segir í tilkynningunni, er metinn á um 2 milljarða evra og ársvöxtur áætlaður 4 til 6 prósent, sem er í samræmi við áætlanir Marel um markaðsvöxt til lengri tíma. Marel stefnir að því að vaxa hraðar en markaðurinn á grundvelli fjárfestinga sinna í nýsköpun, vöruþróun og alþjóðlegu sölu-og þjónustuneti.

Kaupverðið verður greitt með reiðufé og núverandi lánalínum Marels en fram kemur í tilkynningunni að viðræður munu núna hefjast við seljendur um greiðslu hluta kaupverðs í hlutabréfum Marel og niðurstaða liggja fyrir áður en uppgjör fer fram.

„Kaupin eru fjármögnuð með sterkum efnahagsreikningi Marel og núverandi lánalínum. Til að viðhalda sveigjanleika í rekstri, hefur Marel skrifað undir 150 milljón evra brúarlán við BNP Paribas Fortis. Ef kaupverðið verður greitt að fullu með reiðufé, er áætlað að skuldahlutfall eftir uppgjör fari í um 3 sinnum nettó skuldir/EBITDA, samanborið við markmið félagins um skuldahlutfall sem nemur 2 til 3 sinnum nettó skuldir/EBITDA,“ segir í tilkynningunni.

Kaupin eru háð hefðbundnum fyrirvörum, meðal annars fyrirvara um samþykki samkeppnisyfirvalda og hluthafa Wenger, en áætlað er að gengið verði frá kaupunum á öðrum ársfjórðungi 2022.

„Við þekkjum Wenger teymið vel, og erum full tilhlökkunar að starfa saman að frekari umbreytingum á matvæla- og fóðurmarkaði. Fyrirtækjamenning og framtíðarsýn félaganna passa vel saman. Wenger líkt og Marel leggur áherslu á stöðuga nýsköpun og að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu. Wenger er leiðandi á heimsvísu í lausnum og þjónustu til matvælavinnslu fyrir gæludýr og fyrir fóður til fiskeldis. Á síðustu árum hefur Wenger náð góðri markaðsstöðu í ört vaxandi iðnaði fyrir vinnslu plöntupróteina fyrir neytendamarkað. Wenger er staðsett í miðri framleiðslukeðjunni, sem er sambærilegt við það hvar Marel hóf göngu sína á markaði hátæknilausna til fiskvinnslu,“ segir Árni Oddur í tilkynningunni.

Okkur varð ljóst í viðræðum félaganna að mikil samlegð væri bæði í fyrirtækjamenningu sem og vöruframboði.

Þá er haft eftir Trevor Angell, stjórnarformanni Wenger, að fyrirtækið eigi sér langa sögu sem traustur samstarfsaðili á sviði hátæknilausna og nýsköpunar.

„Þar spila þau traustu viðskiptasambönd sem við leggjum mikla áherslu á að rækta og okkar öflugi hópur starfsmanna lykilhlutverk. Viðskiptavinir okkar á heimsvísu kalla eftir öflugum samstarfsaðilum og staðbundinni þjónustu til að tryggja að starfsemi þeirra sé sem skilvirkust. Marel hefur fjárfest ríkulega í alþjóðlegu sölu- og þjónustuneti sínu og stafrænum lausnum, sem mun styrkja stöðu Wenger sem fyrsta val viðskiptavina, auka líftíma tækjabúnaðar og þannig stuðla að bættri sjálfbærni. Starfsmenn okkar munu verða hluti af stóru og öflugu fyrirtæki á alþjóðamarkaði sem gefur þeim aukin tækifæri til að vaxa og dafna í starfi.

Okkur varð ljóst í viðræðum félaganna að mikil samlegð væri bæði í fyrirtækjamenningu sem og vöruframboði. Við byggjum á sömu gildum og framtíðarsýn, þar sem samtarf við viðskiptavini og umhyggja fyrir starfsfólki styðja vel við tækniforskot félaganna og þeirra jákvæðu áhrifa sem félögin geta haft á framleiðslu matvæla um heim allan. Það er okkur einstök ánægja að ganga til liðs við Marel og við höfum miklar væntingar um þau tækifæri sem í því felast fyrir viðskiptavini okkar og starfsmenn.”



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×