Innlent

Umsjónarmaður hvalbáta segir starfsmenn Hvals ekkert eldast

Kristján Már Unnarsson skrifar
Hvalur 9 sjósettur í dag eftir fimm vikna klössun í slippnum í Reykjavík.
Hvalur 9 sjósettur í dag eftir fimm vikna klössun í slippnum í Reykjavík. Rúnar Vilberg Hjaltason

Tilhlökkun er í starfsmönnum Hvals hf. að hefja hvalveiðar á ný eftir fjögurra ára hlé. Í dag var hvalbátnum Hval 9 rennt úr slipp eftir klössun og Hvalur 8 dreginn upp í staðinn.

Í fréttum Stöðvar 2 var sýnt frá Reykjavíkurhöfn þegar Nían, eins og hún er kölluð, var sjósett eftir fimm vikur í slipp en þar fékk hún meðal annars nýja skrúfu.

Hvalur 9 var smíðaður árið 1952 og fagnar því sjötugsafmæli í ár. Voldugt spilverkið í slippnum telst þó enn meiri fornminjar, karlarnir giskuðu á það væri yfir hundrað ára, en sinnir þó enn með sóma því hlutverki sínu að draga skipin upp og slaka þeim svo aftur niður með sjö metra hraða á mínútu.

Halldór Gíslason, umsjónarmaður hvalbátanna, um borð í Hval 9 þegar honum var rennt úr slippnum.Rúnar Vilberg Hjaltason

Nokkrir starfsmenn Hvals voru um borð meðan báturinn seig niður úr slippnum. Eftir fjögurra ára hlé sjá þeir núna loksins fram á hvalvertíð. Halldór Gíslason, umsjónarmaður hvalbátanna, giskaði á að starfsmenn yrðu á milli 140 og 150 manns.

-En nú eruð þið allir að eldast. Er ekki erfitt að finna mannskap sem kann til verka?

„Það eldist enginn hjá Hval, sérðu,“ svarar Halldór og hlær.

-Eruð þið allir síungir?

„Já, við erum allir síungir, sko. Það er ekki gefinn upp aldur hérna.“

-En er tilhlökkun gagnvart því að hefja nýja hvalveiðivertíð?

„Það hlýtur að vera. Við treystum á það,“ svarar Halldór.

Eftir að hvalbáturinn var kominn á flot og laus úr sleðanum tók dráttarbáturinn Haki við og færði hann að bryggju hvalbátanna við Ægisgarð.

Hvalur 8 dreginn upp í slippinn í dag.Rúnar Vilberg Hjaltason

Þá var röðin komin að hinum hvalbátnum, Áttunni, sem er enn eldri, var smíðuð árið 1948, en hafnsögumennirnir á Haka færðu Hval 8 yfir að dráttarbrautinni. Eftir að búið var að skorða hann í sleðanum var hann dreginn upp. Í slippnum bíður hans botnhreinsun og málun og áætla starfsmenn Stálsmiðjunnar Framtaks að verkið taki um tvær vikur.

Búist er við að hvalbátarnir haldi til veiða í fyrri hluta júnímánaðar. Það gæti því orðið í kringum 10. júní sem þeir koma með fyrstu langreyðarnar að landi í Hvalfirði.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Hvalveiðikvótinn heimilar veiðar á 193 langreyðum

Fátt virðist geta komið í veg fyrir að stórhvalaveiðar hefjist að nýju við Ísland í sumar eftir fjögurra ára hlé. Heimilt er að veiða hátt í tvöhundruð langreyðar í ár og Hvalur hf. er auk þess með fullgilt vinnsluleyfi í hvalstöðinni í Hvalfirði.

Hvalur fær fimm ára veiðileyfi á langreyði

Leyfið er til fimm ára. Kveðið er á um að fyrirtækinu beri að hafa frumkvæði að skila dagbókum um veiðarnar sem það vanrækti að skila á liðnu tímabili.

Hvalvertíðin blásin af, veiðileyfi kom of seint

Engar hvalveiðar verða þetta sumarið hjá Hval hf. Skýringin er sögð sú að veiðileyfi hafi komið of seint til að nægur tími gæfist til að ljúka nauðsynlegu viðhaldi á hvalbátunum.

Segir hvalveiðimenn með góða samvisku og sofa vel

Starfsmenn Hvals hf. eru byrjaðir að undirbúa hvalvertíð sumarsins, þá fyrstu eftir nærri þriggja ára hlé, og í dag var annar hvalbátanna dreginn upp í slipp í Reykjavíkurhöfn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×