Bílar

BMW segir að tími Tesla á toppnum sé liðinn

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
BMW i4 í forgrunni og iX í bakgrunni.
BMW i4 í forgrunni og iX í bakgrunni.

Yfirmaður sölumála hjá BMW, Pieter Nota segir að Tesla hafi haft einstaka stöðu þegar kemur að sölu en segir jafnframt að sá „tími sé liðinn.“

BMW ætlar sér stóra hluti á rafbílamarkaði. Þýski framleiðandinn spáir því að fyrir árið 2030 verði annar hver BMW seldur, hreinn rafbíll.

Pieter Nota, til hægri á myndinni, afhendir Lisa Weindl og Linh Doan milljónasta vistvæna BMW-inn sem er framleiddur.

Með aukinni sölu sér BMW fyrir sér að skora Tesla á hólm, sérstaklega á Bandaríkjamarkaði. Þess ber að geta að Tesla batt enda á áralanga forystu BMW á lúxusbílamarkaði í Bandaríkjunum í fyrra.

BMW ætlar sér að selja 200.000 rafbíla á þessu ári, sem er tvöfalt meira en í fyrra,. Það er þó enn talsvert frá markmiðum Tesla, sem seldi 930.000 rafbíla á síðasta ári og ætlar yfir milljónina í ár.

Pieter Nota bætti við í samtali við blaðamenn að hingað til hafi meginþorri kaupenda rafbíla verið nýjungagjarnt fólk en nú sé markaðurinn að færast meira yfir í almenna kaupendur.

BMW er að setja tvo nýja rafbíla á markað um þessar mundir. Annars vegar iX sem þegar er kominn út. Hins vegar i4 sem er væntanlegur á árinu. BMW iX er ætlað að keppa við Tesla Model X og i4 er miðað á Model 3.

Sala á iX og i4 fer vel af stað samkvæmt Nota. „Við munum reyna á þanþol fyrirtækisins þegar kemur að framleiðslugetu. Eftirspurnin mun vera gríðarleg. Við sjáum það nú þegar með iX og i4,“ sagði Nota.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×