Erlent

Segist ekki getað lifað með því að fólk haldi hann beita heimilis­of­beldi

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Johnny Depp bar vitni í eigin máli gegn Amber Heard, fyrrverandi eiginkonu hans, í gær. Hann mun halda vitnisburði sínum áfram í dag.
Johnny Depp bar vitni í eigin máli gegn Amber Heard, fyrrverandi eiginkonu hans, í gær. Hann mun halda vitnisburði sínum áfram í dag. Getty/Jim Watson

Leikarinn Johnny Depp segist ekki hafa getað lifað með því að fólk héldi að hann beitti heimilisofbeldi. Þess vegna hafi hann ákveðið að stefna Amber Heard fyrrverandi eiginkonu sinni fyrir ærumeiðingar, eftir að hún sakaði hann um að hafa beitt sig ofbeldi.

„Markmið mitt er að draga fram sannleikann vegna þess að ég gat ekki lifað með því að allt fólkið, sem ég hef kynnst í gegnum árin, héldi að ég væri eitthvað sem ég er ekki,“ sagði Depp í vitnastúku í gær. 

Aðalmeðferð í ærumeiðingamáli hans gegn Heard fer nú fram í sýsludómi í Fairfax í Virginíu. Meðferðin er á annarri viku og búast má við því að vitnaleiðslur og málflutningur muni fara fram í nokkra daga í viðbót. 

Depp tók þá ákvörðun, sem kom einhverjum á óvart, að bera sjálfur vitni í málinu. Hann steig í vitnastúku í gær og harðneitaði að hafa nokkurn tíma lagt hönd á Heard. Þá sagði hann ásakanir hennar um að hann hafi beitt hana líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi hræðilegar og úr lausu lofti gripnar. 

Hefur tapað tveimur ærumeiðingamálum vegna greinar Heard

Mál Depps byggir á grein, sem Heard skrifaði fyrir Washington Post árið 2018, þar sem hún sagðist vera orðin andlit þolenda heimilisofbeldis. Depp var hvergi nefndur á nafn í greininni en í henni komu fram lýsingar á ofbeldi sem hún hafði áður sagt frá við skilnað þeirra árið 2016. Við skilnaðinn fékk Heard nálgunarbann gegn Depp vegna ásakana um ofbeldi. 

Þetta er annað skiptið sem Depp stefnir Heard fyrir ærumeiðingar en hann tapaði slíku máli gegn henni fyrir dómstólum í Bretlandi fyrir tveimur árum síðan. Þá tapaði hann sömuleiðis ærumeiðingamáli sem hann höfðaði gegn News Group Newspapers, sem gefur út breska götublaðið The Sun eftir að hann var kallaður heimilisofbeldismaður (e. Wife beater) í frétt blaðsins. Hann tapaði því máli sömuleiðis. 

Amber Heard hefur enn ekki borið vitni í málinu.Getty/Jim Watson

Frá því að Heard birti ásakanirnar opinberlega hefur Depp misst hvert hlutverkið á fætur öðru eða sagt sig frá verkefnum. 

„Síðustu sex ár hafa verið mjög erfið. Það er mjög skrítið að vera einn daginn Öskubuska og svo hálfri sekúndu seinna ertu orðinn Hringjarinn af Notre Dame.“

Segir mömmu sína hafa beitt sig ofbeldi í æsku

Depp sat lengi í vitnastúku í gær og talaði þar meðal annars um barnæsku sína en hann sagðist hafa orðið fyrir stöðugu ofbeldi frá móður sinni í æsku. Hann tók þá fram að þegar hann varð sjálfur faðir hafi hann gert allt sem hann gat til að tryggja að hans eigin börn myndu ekki upplifa sama hrylling í æsku. 

Depp talaði sömuleiðis um upphafið á sambandi þeirra Heard en þau gengu í hjónaband árið 2015. Hann sagði að í fyrstu hafi allt gengið eins og í sögu. Þau hafi átt margt sameiginlegt og notið lífsins. Hins vegar hafi verið til staðar litlir hlutir, sem hefðu átt að benda til þess að sambandið yrði ekki eins og dans á rósum. 

Hún hafi til dæmis farið í uppnám eitt sinn þegar hann leyfði henni ekki að klæða sig úr skónum þegar hann kom heim, eins hún gerði venjulega. Hún hafi sömuleiðis orðið honum reið ef hann fór ekki í háttinn þegar hún var tilbúin til þess. 

„Ég skildi það ekki, sem maður á sextugsaldri gat ég ekki bara farið að sofa þegar ég vildi það. Ég var líka meðvitaður um að ég var gamli, hrjúfi karlfauskurinn og hún var þessi fallega vera,“ sagði Depp. 

Viðurkennir neyslu en segir sögur Heard ýktar

Frá því að aðalmeðferð í málinu hófst hefur fjöldi vina, ættingja og starfsmanna Depp borið vitni þess efnis að Heard hafi verið sú sem var ofbeldisfull í sambandinu. Fyrrverandi aðstoðarkona Heard sagði þá frá því í vitnastúku að Heard hafi eitt sinn hrækt framan í hana. 

Lögmenn Heard segja þá að Depp hafi ítrekað beitt Heard kynferðislegu og líkamlegu ofbeldi og hann hafi oft gert það eftir að hafa drukkið of mikið eða tekið fíkniefni. 

Depp hefur ítrekað talað um það að vera háður áfengi og fíkniefnum og sagði í vitnastúku að hann hafi nokkrum sinnum tekið kókaín með Whitney, systur Heard. Hann hafi þó ekki haft þörf til að vera stöðugt undir áhrifum fíkniefna. 

Depp sagðist sömuleiðis hafa orðið háður verkjalyfjum eftir að hann fékk þau uppáskrifuð í kjölfar slyss sem hann varð fyrir við tökur á fjórðu Pirates of the Caribbean kvikmyndinni. Hann hafi sömuleiðis farið að misnota geðlyf móður sinnar þegar hann var unglingur. Hann sagðist þó löngu hættur að taka lyfin reglulega og sagðist hafa verið edrú í lengri tíma í gegn um árin. 

„Sögurnar sem Heard segir af minni neyslu eru mjög ýktar. Og það hryggir mig að segja að margar þeirra eru einfaldlega ekki sannar. Ég held bara að það hafi verið auðvelt fyrir hana að ljúga þessu upp á mig,“ sagði Depp í gær. 


Tengdar fréttir

Johnny Depp ber vitni í málinu gegn Am­ber Heard í dag

Leikarinn Johnny Depp mun bera vitni fyrir dómi í Fairfax sýslu í Virginiu í dag í máli sem hann höfðaði gegn Amber Heard fyrrverandi eiginonu sinni fyrir ærumeiðingar. Depp byggir mál sitt á því að Heard hafi logið því upp á hann að hafa beitt hana heimilisofbeldi.

Saka hvort annað um lygar og ofbeldi

Lögmenn Johnny Depp sögðu Amber Heard, fyrrverandi eiginkonu hans, vera lygara sem væri heltekin af ímynd sinni. Það gerðu þeir við upphaf réttarhalda í máli þar sem hann hefur sakað hana um að ljúga upp á sig ofbeldi.

Johnny Depp tapar meið­yrða­máli gegn The Sun

Bandaríski leikarinn Johnny Depp hefur tapað meiðyrðamáli gegn breska blaðinu The Sun. Depp höfðaði málið gegn blaðinu eftir að hafa verið sakaður um að hafa beitt þáverandi eiginkonu sína ofbeldi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×