Sport

Anton sló sjö ára gamalt Íslandsmet sitt og vann á Spáni

Sindri Sverrisson skrifar
Anton Sveinn McKee er greinilega í afar góðum gír nú þegar styttist í heimsmeistaramótið.
Anton Sveinn McKee er greinilega í afar góðum gír nú þegar styttist í heimsmeistaramótið.

Sundkappinn Anton Sveinn McKee gerði sér lítið fyrir og bætti sjö ára gamalt Íslandsmet sitt í 200 metra bringusundi þegar hann vann sigur í greininni á spænska meistaramótinu í dag.

Anton synti á 2:10,02 mínútum og bætti Íslandsmet sitt frá því á HM í Kazan árið 2015 um 19/100 úr sekúndu.

Sannarlega frábær tíðindi fyrir Anton eftir erfitt keppnisár í fyrra. Hann á nú fyrir höndum spennandi sumar og er á leið á heimsmeistaramótið í Búdapest sem hefst 18. júní.

Anton vann einnig sigur í 100 metra bringusundi á spænska meistaramótinu og synti þá á 1:00,80 mínútu, eða um hálfri sekúndu frá Íslandsmeti sínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×