Erlent

Bók­stafurinn sem táknar stuðning við inn­rás Rússa

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Serbneskir stuðningsmenn Rússa mættu með Z-una á mótmæli á dögunum.
Serbneskir stuðningsmenn Rússa mættu með Z-una á mótmæli á dögunum. Milos Miskov/Anadolu Agency via Getty Images

Tákn sem birst hefur á myndum af stríðsvélum Rússa í Úkraínu og virðist upphaflega átt að þjóna þeim tilgangi að aðgreina stríðsgögnin hefur öðlast nýtt líf. Bókstafurinn Z er orðið tákn þeirra sem styðja Rússa og innrásina í Úkraínu.

Táknið, bókstafurinn Z, sást fyrst á skriðdrekum og herbílum Rússa við upphaf innrásarinnar í Úkraínu. Myndir og myndbönd sýna hvernig búið var að mála bókstafinn á ýmis hergögn Rússa.

Líklega ætlað til að aðgreina hergögn Rússa

Fjallað var um málið á vef breska miðilsins Independent í upphafi innrásarinnar. Þar kom fram, samkvæmt sérfræðingum í hernaði, að merkingunni væri líklega ætlað að tákna hvert hver herdeild væri að fara, og til að koma í veg fyrir að Rússar myndu skjóta á eigin herdeildir, enda margt sameiginlegt með hergögnum Rússa og Úkraínumanna.

Í einhverjum tilvikum hefur Z-an verið inn í kassa, í öðrum inni í þríhyrningi eða þá bara stök. Á samfélasmiðlum hefur því verið haldið fram að Z-an merki Za pobedy sem þýðir til sigurs. Aðrir vilja meina að Z-an tákni Zapad, sem þýðir vestur. 

Hernaðarsérfræðingurinn Michael Clarke telur líklegast að Z-an tákni hvert hver herdeild eigi að stefna.

„Yfirleitt eru þessar merkingar byggðar á staðsetningu. Þeir segja deildunum hvert þeir eiga að fara,“ sagði Clarke við Sky News en breska fréttastofan rannsakaði táknið á dögunum.

Í umfjöllun Sky News eru birtar myndir af alls konar táknum á rússneskum hergögnum, máluð á skriðdrekana og herbílana á sama hátt og Z-an,  á áberandi hátt með hvítri málningu.

„Það að þau eru svona margvísleg segir manni meira. Þetta eru örugglega merki sem tákna hverjir eigi að fara norðaustur eða norðvestur innan ákveðins héraðs, svo ég nefni dæmi,“ sagði Clarke.

Orðið eitthvað stærra og meira

Z-an virðist hins vegar hafa eignast nýtt líf utan stríðsvéla Rússa, sem tákn þeirra sem styðja Rússa og innrásina inn í Úkraínu.

Þannig hefur Z-an birst víða. Greint hefur verið frá því á samfélagsmiðlum að Z-an hafi birst víða í Rússlandi á límmiðum sem búið að vera að koma fyrir á bílum.

Þá stóðu öfgasinnaðir stuðningsmenn Rússa í Serbíu fyrir mótmælum vopnaðir skiltum þar sem Z-an var áberandi.

Rússneskir þjóðernissinar sem styðja innrásina í Úkraínu hafa einnig birt myndbönd þar sem Z-an er áberandi, eins og sjá má á myndbandinu hér að neðan.

Í borginni Kazan var gengið skrefinu lengra. Þar skipulagði forsvarsmaður góðgerðarsamtaka sem styðja krabbameinsjúka myndatöku þar sem krabbameinssjúk börn og mæður þeirra stilltu sér upp í myndatöku. Stilltu þau sér upp í Z-u.

Dæmdur njósnari, nú þingmaður, teiknaði Z-una á jakkann

Stuðningsmenn Vladímirs Pútíns Rússlandsforseta hafa einnig gripið til þess að nýta sér táknið. María Butína, sem játaði sig seka um samsæri og starfar sem útsendari erlends ríkis í Bandaríkjunum árið 2019, er ein af þeim.

Serbneskur mótmælandi spreyjar Z-una á götuna.Milos Miskov/Anadolu Agency via Getty Images)

Bútína er nú þingmaður í Rússlandi. Á dögunum birti hún myndband þar sem hún fór úr jakkanum og teiknaði Z-u á boðung jakkans.

Hún er ekki sú eina sem teiknað hefur Z-una á klæði sín. Þannig nýtti rússneski fimleikamaðurinn Ivan Kuliak tækifærið um helgina þegar hann deildi verðlaunapalli með Ilia Kovtun, úkraínskum fimleikamanni.

Kovtun vann gull en Kuliak þurfti að sætta sig við brons. Kuliak mátti ekki keppa í búningi merktum Rússlandi en hann ákvað þess í stað að búa til Z á á brjóstkassanum sínum í stað rússneska merkisins.

Alþjóðafimleikasambandið segist hafa tekið þetta mál inn á borð aganefndar sambandsins vegna þessarar framkomu Rússans unga á heimsbikarmótinu. Hann gæti því átt von á sekt eða banni.

Fylgst er með öllum nýjustu vendingum í Úkraínu í Vaktinni á Vísi sem nálgast má í fréttinni hér að neðan.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×