Lífið samstarf

Tax free dagar í Rúmfó

Rúmfatalagerinn
Ólafur Helgason verslunarstjóri Rúmfatalagersins á Granda hvetur fólk til að kíkja við um helgina en allar vörur í öllum verslunum Rúmfatalagersins verða á afslætti.
Ólafur Helgason verslunarstjóri Rúmfatalagersins á Granda hvetur fólk til að kíkja við um helgina en allar vörur í öllum verslunum Rúmfatalagersins verða á afslætti.

Tax free dagar hefjast í dag í öllum verslunum Rúmfatalagersins. Einstakt tækifæri til þess að gera frábær kaup.

„Allar vörur verða á afslætti, einnig þær vörur sem sjaldan fara á tilboð eða aldrei. Við höfum einnig verið að taka upp mikið af nýjum og spennandi vörum í öllum deildum og viðskiptavinum okkar gefst því einstakt tækifæri þessa daga til að gera góð kaup á fallegum heimilisvörum,“ segir Ólafur Helgason, verslunarstjóri Rúmfatalagersins á Granda.

„Við fengum sérstaklega mikið af skrautmunum, vösum og púðum, plöntum og fleiru sem við höfum verið að raða í hillur undanfarna daga. Það verður spennandi að kíkja í búðirnar núna þegar við höfum hreinsað upp eftir jólin og útsölur afstaðnar. Nýju vörurnar fá að njóta sín. Ég hvet þá sem eru að byrja að búa til að renna við hjá okkur og nýta sér afsláttinn,“ segir Ólafur. Hann bendir einnig á heimasíðu Rúmfatalagersins þar sem hægt er að skoða nýtt og væntanlegt.

„Við erum alltaf að uppfæra og betrumbæta vefsíðuna okkur og undir þessum dálki er hægt að skoða allar nýjar vörur og það sem er væntanlegt í verslanirnar okkar. Umferð inn á síðuna hefur aukist mjög og fólk nýtir sér vefverslunina í stórum stíl. Smellt og sótt er sérstaklega vinsæl þjónusta þar sem fólk getur verslað á netinu og sótt pöntunina í hvaða verslun sem hentar.“

Taxfree dagar standa yfir 25. – 28. Febrúar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×