Hákarl banaði manni fyrir framan stangveiðimenn Samúel Karl Ólason skrifar 16. febrúar 2022 16:06 Vitni segja hvítháf hafa ráðist á manninn. Getty Maður sem var á sundi undan ströndum Sydney í Ástralíu í morgun var drepinn af hákarli. Nokkur vitni voru að árásinni sem var einungis nokkra metra frá landi og segja vitnin að hvítháfur hafi banað manninum.
ABC News í Ástralíu segir þetta í fyrsta sinn sem hákarl banar manneskju í Sydney í nærri því sextíu ár. Stangveiðimaður sem ræddi við ABC segir að um mann hafi verið að ræða. Hann hafi verið í blautbúning og hafi verið að synda fram hjá þegar hann byrjaði að öskra og var dreginn á kaf af hákarlinum. Maðurinn sagði árásina hafa staðið yfir í nokkrar sekúndur. „Þetta var hræðilegt,“ sagði maðurinn. Hann sagðist hafa kastað ítrekað upp í kjölfarið og hætti ekki að skjálfa. Fleiri stangveiðimenn urðu vitni að árásinni. Líkamsleifar fundust í sjónum þar sem árásin átti sér stað og var blek sett í sjóinn á staðnum til að sjá hvert líkamsleifar gætu hafa rekið. Þá hafa myndbönd sem tekin voru á meðan á árásinni stóð og í kjölfar hennar verið í dreifingu á netinu. TMZ birti eitt þeirra. „Einhver var étinn af hákarli,“ er það fyrsta sem maðurinn sem tók myndbandið sagði.
Ástralía Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Fleiri fréttir Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Sjá meira