Innlent

1.294 greindust innan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
33 prósent af sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu.
33 prósent af sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu. Vísir/Vilhelm

1.294 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 53 á landamærum.

Frá þessu segir á síðunni covid.is. 11.111 eru nú í einangrun vegna Covid-19 samanborið við 11.611 í gær. 8.342 eru nú í sóttkví, en voru 7.954 í gær. 148 eru nú í skimunarsóttkví.

33 prósent af sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu og 67 prósent utan sóttkvíar.

36 eru nú á sjúkrahúsi með Covid-19, en var 31 í gær. Tveir eru á gjörgæslu.

Alls hafa 79.511 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á þarsíðasta ári. 21 prósent íbúa hafa nú greinst með Covid-19. Fimmtíu hafa látist á Íslandi vegna COVID-19 frá upphafi faraldursins.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 5.046 en var 5.118 í gær. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 213, samanborið við 213 í gær.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×