Innlent

Enn fækkar sjúk­lingum á Land­spítala með Co­vid-19

Atli Ísleifsson skrifar
215 starfsmenn Landspítalans eru nú í einangrun vegna Covid-19.
215 starfsmenn Landspítalans eru nú í einangrun vegna Covid-19. Vísir/Vilhelm

21 sjúklingur liggur nú á Landspítala með Covid-19 og hefur þeim fækkað um fimm milli daga. Þrír eru á gjörgæslu, tveir þeirra í öndunarvél.

Þetta kemur fram á vef Landspítalans. Meðalaldur innlagðra er nú 65 ár.

8.653 sjúklingar eru í Covid- göngudeild spítalans, þar af 3.006 börn.

Covid sýktir starfsmenn Landspítala (í einangrun eða innlögn) eru 215, en voru 208 í gær.

Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 407 innlagnir vegna COVID-19 á Landspítala.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×