Lífið

Stjörnulífið: „Þvílíkt f-ing ár“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Stjörnulífið er liður á Vísi en þar er farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga.
Stjörnulífið er liður á Vísi en þar er farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga. Samsett/Instagram

Íslendingar kvöddu árið 2021 um helgina og tóku fagnandi á móti 2022. Bjartsýni og þakklæti einkennir samfélagsmiðla þessa dagana, enda var síðasta ár mörgum erfitt.

Birkir Blær sem vann sænska Idol-ið á dögunum fagnaði áramótunum í heimabænum Akureyri.

Sara Björk Gunnarsdóttir landsliðsfyrirliði í fótbolta er tilbúin í nýtt ár með uppáhaldsfólkinu sínu.

Birgitta Haukdal segir að árið 2022 verði ÆÐI. Við trúum því. 

Fótboltaparið Eyjólfur Héðinsson og Fanndís Friðriksdóttir fögnuðu áramótunum með ellefu mánaða gömlu Elísu. Þau skörtuðu grímum á gamlárskvöld eins og svo margir.

Sunneva Einars fór yfir árið og birti sætar paramyndir.

Camilla Rut skálaði fyrir hamingjunni á áramótunum.

„Megi 2022 vera yfirfullt af góðum fullnægingum, hlátrasköllum & dýrmætum augnablikum ásamt því að gefa ykkur allt sem þið þurfið & þráið.“

Leikkonan Birna Rún Eiríks fór á kostum í Only Fans gríni í Skaupinu um helgina. Hún gleymdi samt auðvitað ekki að taka gellumynd á áramótunum.

Vörumerkjastjórinn Erna Hrund var flott í grænu á áramótunum. Hún er gengin fulla meðgöngu og á von á lítilli stúlku á næstu dögum.

Kolbrún Pálína fer glöð, spennt og þakklát inn í nýja árið.

„Stærsta lexían er líklega sú að lexíurnar koma á færibandi svo lengi sem við lifum og því best að æfa móttökurnar fyrir þeim, faðma og þakka fyrir þær.“

Viktoría Hermanns og Sóli Hólm fögnuðu sjöttu áramótunum saman.

Fatahönnuðurinn Andrea Magnúsdóttir er tilbúin í nýja árið.

Dansarinn Hanna Rún Bazev Óladóttir birti fallega hjónamynd frá áramótunum. 

Diljá Mist þingkona Sjálfstæðisflokksins er þakklát fyrir traustið og tækifærin á árinu.

Brynja Dan er spennt fyrir því að segja já við fleiri tækifærum og verkefnum árið 2022. 

„Fyrir 2 árum fórum við á spítala ef einhver tróð einhverju of langt uppí nebbann og allir jákvæðir en þetta árið vorum við öll að hamast við að troða prikum í nefið alla föstudaga til að geta knúsast um helgar og skemmt okkur og vonumst til að allir séu neikvæðir.“

Eliza Reed birti fallega mynd frá því þegar Guðni Th. forseti Íslands afhenti Fálkaorðuna á Bessastöðum. 

Tískuskvísan Elísabet Gunnars svífur þakklát inn í 2022. 

Útvarpskonan Sigga Lund á Bylgjunni er klár í nýja árið. 

Jóhanna Helga var flott í rauðu um helgina og sendi fylgjendum sínum kossa.

Söngkonan og bókahöfundurinn Sólborg fór yfir árið 2021 sem var henni gott.

Áhrifavaldurinn Anna Orlowska birti skemmtilegar myndir frá áramótagleðinni.

Annie Mist horfði til baka í lok árs. Móðurhlutverkið var þar efst á lista. 

Skemmtikrafturinn Eva Ruza var æðisleg í bleiku þessi áramótin.

Söngkonan Bríet er klár í árið 2022. Hún ætlar að gefa út nýja tónlist í janúar.

Steindi og fjölskylda voru ein af þeim fjölskyldum sem eyddu áramótunum í einangrun vegna Covid.

Þórunn Antonía fór í síðkjól á áramótunum. 

Jón Jónsson rifjaði upp árið í nokkrum myndafærslum. 

Fagurkerinn Þórunn Högna valdi pallíettur og gull fyrir áramótin.

Beggi Ólafs byrjaði 2022 á sjósundi. 

Magni Ásgeirsson og Eyrún Huld Haraldsdóttir gleymdu að taka sjálfu á gamlárskvöld. Skelltu í nýársdagssjálfu í sjónum þess í stað.

Fanney Ingvars birti fallega fjölskyldumynd frá því á gamlárskvöld.

Árið var stórt hjá Loga Pedro. 

Birgitta Líf er hamingjusöm á Tenerife.

Manuela Ósk og Eiður eyddu áramótunum saman. 

Baldvin Z birti fjölskyldumynd. Þættir hans Svörtu sandar hafa vakið mikla athygli en þriðji þáttur var sýndur í gær.

Þórdís Valsdóttir útvarpskona í Reykjavík síðdegis byrjaði nýja árið á Covid og einangrun.

Svala Björgvins birti baðherbergismynd af sér með kærastanum.

Kristján Einar tók einnig sjálfu á baðherberginu í ræktinni. 

Helga Braga birti myndir frá tökum á Skaupinu.

Herra Hnetusmjör var alls ekki nógu ánægður með Skaupið. 

Hárgreiðslukonan og förðunarfræðingurinn Rakel María birti fallega paramynd af sér ásamt kærastanum, Garpi Elísabetarsyni. Fjórfætti fjölskyldumeðlimurinn fékk auðvitað að vera með.

Auðunn Blöndal birti fallega fjölskyldumynd. Fjölskyldan varð fjögurra manna árið 2021. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×