Innlent

Strætó loks á leið í vist­þorpið eftir að íbúar sökuðu borgina um tvískinnung

Eiður Þór Árnason skrifar
Íbúum verður skutlað á næstu skiptistöð.
Íbúum verður skutlað á næstu skiptistöð. Vísir/Vilhelm

Strætó mun hefja ferðir í Gufunesþorp í Reykjavík þann 2. janúar næstkomandi en til að byrja með verða strætósamgöngur úr Gufunesi í formi pöntunarþjónustu.

Komið verður upp merktri biðstöð hjá Gufunesþorpi en þar bíður farþegi eftir leigubíl sem kemur þeim á næstu skiptistöð Strætó en líkast til verður það skiptistöðin í Ártúni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Strætó en panta þarf bílinn að minnsta kosti hálftíma fyrir áætlaða brottför. Borgarstjórn samþykkti að hækka fjárheimildir til strætósamgangna um 14,6 milljónir króna til að auka almenningssamgöngur í Gufunesi á fundi sínum þann 7. desember.

Með pöntunarþjónustunni pantar fólk ferð með því að hringja í síma 588 5522 og farþegi sýnir bílstjóra Strætóappið eða Klappkortið sitt til að staðfesta ferðina.

Engar almenningssamgöngur í vistþorpi

Borgaryfirvöld hafa legið undir gagnrýni Fyrir að tryggja ekki aðgang að almenningssamgöngum í nýju íbúðahverfi í Gufunesi sem hefur verið kynnt sem vistþorp. Tinna Þorvalds Önnudóttir, íbúi í Gufunesi, gagnrýndi þessa stöðu í grein sem birtist á Vísi í nóvember.

„Formlega er þessu hverfi ætlað að hvetja til þess að íbúar temji sér bíllausan lífsstíl. Hins vegar komumst við öll að því þegar við fluttum inn að jafnvel þótt borgin hefði úthlutað þessari lóð undir „vistþorp” með umhverfisvæna stefnu og bílleysi að leiðarljósi þá hafði ekki verið hugsað fyrir almenningssamgöngum að hverfinu.

Næsta strætóstoppistöð er í 20-25 mínútna göngufjarlægð, en þá leið getur manneskja einungis farið ef hún er fullfær og ófötluð enda liggur sú leið upp brattan, ólýstan slóða í gegnum móa (einungis er um slóða að ræða, enga formlega leið eða gangstétt). Og ef manneskja ætlar að taka strætó með barnavagn þá þarf hún að ganga um 45 mínútna leið - og úti á miðjum Gufunesveginum, því engin gangstétt er þar meðfram heldur,“ segir Tinna.

Tekið of langan tíma

Tinna gerir sömuleiðis alvarlegar athugasemdir við að skortur sé á göngustígum sem liggi að hverfinu. Hún hafi raunar í fyrsta skipti á ævi sinni fundið þörf til þess að eiga bíl eftir að hún flutti í hverfið.

Að sögn Tinnu geta íbúar sætt sig við að sett verði upp pöntunarþjónusta á vegum Strætó sem einhvers konar millibilsástand. Hún gagnrýnir þó hve lítið hafi gerst í þeim málum þrátt fyrir að tæp tvö ár séu liðin frá því að borgin gaf vilyrði fyrir lóðum undir Gufuneshverfið.

„Almenningssamgöngur hingað í Gufunesið snúast ekki bara um okkur sem hér búum heldur líka um fjölskyldur okkar og vini sem vilja heimsækja okkur.“


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×