Það hefur verið mikið rætt og ritað um Víkingsliðið að undanförnu en var æskuvinur Kára, Sölvi Geir Ottesen, einni að leggja skóna á hilluna. Gunnlaugur Jónsson ætlaði að fá að fylgja þeim eftir í lokaleikjunum fyrir Stöð 2 Sport.
Ákvað hann á endanum að gera fjögurra þátta seríu þar sem dramatík Pepsi Max deildarinnar verður í fyrirrúmi en langt er síðan deildin var jafn æsispennandi og í ár.
Kári mætti í sjónvarpsþáttinn 433 og ræddi sumarið sem og nýtt starf en hann er nú yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingum.
„Það er svolítið spes, þetta er bara gaman. Nýjar áskoranir og það er nóg að gera. Þetta er frekar vítt, ýmislegt sem þarf að gera. Til að mynda að mynda stefnur, afreksstefnur og annað. Það er tengt barna- og unglingaráði. Það er efst á baugi þar og svo kemur þetta líka að meistaraflokknum,“ segir Kári um hið nýja starf.
Kári segir einnig að hann hefði getað haldið áfram að spila en að enda ferilinn á tveimur titlum með uppeldisfélaginu hafi svo sannarlega hjálpað til. Eftir það færist umræðan yfir í þættina hans Gulla sem Kári vonar að verði einfaldlega ekki of væmnir.
„Gulli hafði samband við mig og vildi gera heimildarmynd varðandi minn feril og fylgja mér síðustu leikina á ferlinum. Hann mætir svo á völlinn, sér Sölva Geir bjarga á línu með hausnum og segist hafa fundið á sér að það væri eitthvað stærra í uppsiglingu. Ég vona bara að hann geri þetta ekki of væmið. Vonandi verður þetta meira fótboltatengt og mikill hasar,“ sagði Kári að endingu í viðtali sínu við sjónvarpsþáttinn 433.


Víkingar - Fullkominn endir er heimildaþáttaröð í fjórum hlutum um Íslands- og bikarmeistara Víkings. Áskrift að Stöð 2 Sport kostar frá kr. 3.990 og má kaupa áskrift á stod2.is.