Skoðun

Hver er stefna Sjálfstæðisflokksins í heilbrigðismálum?

Þorsteinn Sæmundsson skrifar

Leiðtogar Sjálfstæðisflokks og VG hafa undanfarandi lýst löngun sinni til að endurnýja núverandi stjórnarsamstarf að loknum kosningum í haust. Leiðtogarnir hafa lagt sig fram um að sýna gott samband sín á milli. Meðal annars hafa þau tekið sér tíma frá því að baka vandræði við ríkisstjórnarborðið og gripið í að baka bollakökur í sjónvarpinu. Allt er þetta huggulegt og má maður segja krúttlegt en nauðsynlegt er burtséð frá kökubakstrinum að vita hvað hugsanlegt framlengt stjórnarsamstarf gæti falið í sér. Í fjögur ár hefur Sjálfstæðisflokkurinn tekið þátt í að sveigja heilbrigðiskerfið í átt að auknum ríkisrekstri á kostnað sjálfstætt starfandi aðila og félagasamtaka. Þessi vegferð hefur haft í för með sér skerðingu á heilbrigðisþjónustu við almenning. Nefna má nokkur dæmi. Sjálfstæðisflokkurinn tekur þátt í að viðhalda biðlistum í algengum aðgerðum s.s. liðskiptaaðgerðum á hné og mjöðm í stað þess að semja við innlendan einkaaðila sem er þess albúinn að gera fjölda slíkra aðgerða. Í stað þess tekur Sjálfstæðisflokkurinn þátt í að senda sjúklinga á einkasjúkrahús í Svíþjóð vegna sömu aðgerða. Kostnaðurinn er tvö og hálft til þrefaldur miðað við það sem er í boði hér á landi. Þess má geta að Sjálfstæðisflokkurinn fer með ríkisfjármálin.

Sjálfstæðisflokkurinn tekur þátt í að halda fjölda kvenna sem bíða niðurstaðna leghálssýna í spennitreyju og sættir sig við að úrvinnsla sýna dragist vegna sendinga til Danmerkur. Sjálfstæðisflokkurinn hefur engar athugasemdir uppi við ástandið. Sjálfstæðisflokkurinn ræður fjármálaráðuneytinu í núverandi ríkisstjórn. Flokkurinn hefur enga tilburði uppi til að koma á samningum milli sjálfstætt starfandi sérfræðinga sem hafa verið án samningssambands síðan árið 2018 heldur styður við stefnu sem lækkað hefur framlög til einkarekinna aðila úr 6 til 7% af heildarútgjöldum til heilbrigðismála í 4% á örfáum árum. Flokkurinn styður jafnframt stefnu varðandi endurgreiðslur til skjólstæðinga sérfræðilækna sem hugsanlega standast ekki lög um bókhald eins og fram kom í nýlegri grein í Morgunblaðinu. Enn er minnt á að Sjálfstæðisflokkurinn hefur lyklavöld að fjármálaráðuneytinu.

Sjálfstæðisflokkurinn styður stefnu sem er hægt og hægt að sliga rekstur hjúkrunarheimila og hefur neytt sveitarfélög til að gefast upp við þann rekstur. Heldur nöturleg framkoma við fólkið sem ól okkur upp ekki satt. Sjálfstæðisflokkurinn boðar nýfenginn áhuga á heilbrigðismálum og kveðst vilja breytingar………..eftir kosningar. Það sama er uppi á teningnum í málefnum eldra fólks. Þar á að bæta úr áralangri vanrækslu flokksins……..eftir kosningar. Stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins hljóta að hugsa sig um og inna forystu flokksins eftir stefnu hans í heilbrigðismálum.

Ungir læknar sem hafa lokið framhaldsnámi erlendis veigra sér við að koma heim vegna ófremdarástands á Landspítala og víðar í heilbrigðiskerfinu sem er á ábyrgð Sjálfstæðisflokksins. Mikill hluti þessa unga fólks lítur ekki á Ísland sem ,,land tækifæranna“ og haslar sér því völl erlendis. Það er illbætanlegur skaði fyrir Ísland og Íslendinga í boði Sjálfstæðisflokksins.

Höfundur er þingmaður Miðflokksins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×