Sport

Dagskráin í dag: Englendingar mæta Pólverjum

Sigurður Orri Kristjánsson skrifar
Raheem Sterling verður í eldlínunni gegn Pólverjum
Raheem Sterling verður í eldlínunni gegn Pólverjum EPA-EFE/Tibor Illyes

Það verða tvær beinar útsendingar á sportrásum Stöðvar 2 í dag og er um leiki í undankeppni HM 2022 að ræða.

Báðir leikirnir sem verða sýndir hefjast klukkan 18:35.

Annars vegar mætast Norður - Makedónía og Rúmenía í Skopje. Þessi leikur er auðvitað í riðli okkar Íslendinga. 

Þá mæta Englendingar í heimsókn til Varsjá í Póllandi í I riðli. Þetta eru efstu tvö liðin í riðlinum og því má búast við hörkuleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×