Uppfært: Guðni er hættur sem formaður KSÍ Árni Sæberg og Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifa 29. ágúst 2021 16:09 Guðni hefur sagt af sér. mynd/skjáskot Allir starfsmenn KSÍ hafa verið boðaðir á fund klukkan fjögur í dag. Þetta staðfestir Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri sambandsins í samtali við fréttastofu. Vísir verður með beina útsendingu frá höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli. Aðspurð gat Klara ekki gefið fréttastofu upplýsingar um erindi fundarins en ætla má að ofbeldismál verði til umræðu. Hanna Björg Vilhjálmsdóttir kynjafræðikennari og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir sátu klukkustundarlangan fund með fulltrúum stjórnar KSÍ. Þeim fundi lauk um klukkan 16. Hanna Björg segir í samtali við Vísi að fundurinn hafi verið mjög góður. Hún hafi fengið boð á fund, hún komist og þar hafi bæði verið hlustað á hana og hún hlustað. Borghildur Sigurðardóttir varaformaður KSÍ og Ragnhildur Skúladóttir, aðalmaður í stjórn, sátu fundinn með þeim Hönnu og Steinunni. Stjórn KSÍ hefur fundað frá klukkan tíu í morgun. Sannkallaður maraþonfundur var hjá stjórninni í gær um ofbeldismál sem stóð með hléum frá hádegi fram til kvölds. Ekki hefur náðst í Guðna Bergsson, formann KSÍ, í dag þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fréttastofu en hann sagði í gær að yfirlýsingar væri að vænta frá stjórninni í dag.
Aðspurð gat Klara ekki gefið fréttastofu upplýsingar um erindi fundarins en ætla má að ofbeldismál verði til umræðu. Hanna Björg Vilhjálmsdóttir kynjafræðikennari og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir sátu klukkustundarlangan fund með fulltrúum stjórnar KSÍ. Þeim fundi lauk um klukkan 16. Hanna Björg segir í samtali við Vísi að fundurinn hafi verið mjög góður. Hún hafi fengið boð á fund, hún komist og þar hafi bæði verið hlustað á hana og hún hlustað. Borghildur Sigurðardóttir varaformaður KSÍ og Ragnhildur Skúladóttir, aðalmaður í stjórn, sátu fundinn með þeim Hönnu og Steinunni. Stjórn KSÍ hefur fundað frá klukkan tíu í morgun. Sannkallaður maraþonfundur var hjá stjórninni í gær um ofbeldismál sem stóð með hléum frá hádegi fram til kvölds. Ekki hefur náðst í Guðna Bergsson, formann KSÍ, í dag þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fréttastofu en hann sagði í gær að yfirlýsingar væri að vænta frá stjórninni í dag.
Kynferðisofbeldi KSÍ Fótbolti Landsliðsmenn sakaðir um kynferðisofbeldi Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Katla skelfur Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira