Matur

„Ég lofa miklu smjöri og rjóma“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Eva Laufey hefur áður gefið út bækurnar Kökugleði Evu, Matargleði Evu og Í eldhúsi Evu.
Eva Laufey hefur áður gefið út bækurnar Kökugleði Evu, Matargleði Evu og Í eldhúsi Evu. Vísir/Samsett

Fjölmiðlakonan og matgæðingurinn Eva Laufey Kjaran vinnur nú að nýrri bók. Um er að ræða kökubók og verður hún fjórða bók Evu Laufeyjar. 

Eva Laufey segir að bókin komi út fyrir jólin og ætlar að sýna meira frá bókinni næstu mánuði á meðan hún er í vinnslu. 

„Ég get ekki beðið eftir að segja og sýna ykkur betur frá bókinni. Ég lofa miklu smjöri og rjóma,“ skrifaði Eva Laufey í færslu á Facebook. 

Hér fyrir neðan má finna uppskrift frá Evu Laufey sem vakti mikla lukku hér á Vísi þegar hún birtist fyrst hjá okkur fyrir ári síðan.  Bökuð ostakaka með kanileplum og crumble, borin fram með saltaðri karamellusósu.

Ostakaka Evu Laufeyjar er sniðugur kostur í þessu haustveðri.Vísir/Eva Laufey

Uppskrift

Kexbotn

  • 230 Lu Bastogne kexkökur.
  • 80 g smjör, brætt.

Aðferð:

  1. Forhitið ofninn í 150°C.
  2. Setjið kexkökurnar í matvinnsluvél og maukið fínt, hellið brædda smjörinu saman við og hrærið saman.
  3. Klæðið hringlaga form með smjörpappír (sjáið aðferð á Instagram) og hellið blöndunni í formið, sléttið úr með skeið og þrýstið blöndunni í formið.
  4. Bakið við 150°C í 10 mínútur.

Rjómostafylling með eplabitum

  • 700 g hreinn rjómaostur
  • 100 g sykur
  • 3 egg
  • 2 tsk vanilludropar
  • 2 epli
  • 2 tsk sykur + 1 tsk kanill

Aðferð:

  1. Þeytið rjómaostinn þar til hann er mjúkur, skafið meðfram hliðum og þeytið áfram.
  2. Bætið sykrinum smám saman við og þeytið vel.
  3. Bætið einu og einu eggi út í og þeytið vel á milli.
  4. Í lokin fara vanilludropar út í fyllinguna.
  5. Hellið fyllingunni ofan á kexbotninn.
  6. Afhýðið epli og skerið í litla bita, setjið í skál og stráið kanilsykri yfir.
  7. Dreifið eplabitum yfir fyllinguna.
  8. Setjið deigmulning yfir kökuna og bakið við 150°C í 40 mínútur.
  9. Kælið kökuna mjög vel og það er tilvalið að gera kökuna deginum áður en þið ætlið að bera hana fram. Hún þarf að vera köld þegar þið losið hana úr forminu og best er að nota smelluform.
  10. Áður en þið berið kökuna fram þá hellið þið vel af saltaðri karamellusósu yfir.

Kökumulningur:

  • 60 g smjör
  • 50 g hveiti
  • 50 g púðursykur
  • 25 g haframjöl

Aðferð:

  1. Setjið öll hráefnin í skál og notið hendurnar til þess að útbúa mulninginn. 
  2. Dreifið yfir kökuna áður en hún fer inn í ofn.

Söltuð karamellusósa:

  • 2 dl sykur
  • 3 msk smjör
  • 1-2 dl rjómi
  • Sjávarsalt á hnífsoddi

Aðferð:

  1. Hitið sykur á pönnu, um leið og hann byrjar að bráðna lækkið þá hitann og bíðið þar til hann er allur bráðinn (ekki snerta hann á meðan).
  2. Bætið smjörinu út á pönnuna og hrærið stöðugt, hellið rjómanum út smám saman og haldið áfram að hræra. Í lokin bætið þið sjávarsalti saman við og hellið sósunni í ílát.
  3. Leyfið sósunni að standa í svolitla stund áður en hún er borin fram en þá þykknar sósan og það verður betra að hella henni yfir kökuna.

Eva Laufey er dugleg að birta uppskriftir, hugmyndir og góð ráð á Instagram.


Tengdar fréttir

„Það er alltaf pláss fyrir þig“

Fjölmiðlakonan og matgæðingurinn Eva Laufey Kjaran segir að flutningar á milli landshluta og landa í æsku hafi verið mikilvæg reynsla í því að aðlagast og þurfa að bjarga sér. Hún þurti reglulega að komast inn í nýja vinahópa og ný fótboltalið. 

Fengu yfir sig slím ef ræðurnar voru of langar

Sögur - verðlaunahátíð barnanna var haldin í fjórða sinn um helgina. Þar verðlauna börn á aldrinum sex til tólf ára það menningarefni sem þeim finnst hafa staðið upp úr á árinu auk þess sem sögur, leikrit, lög og handrit barna hljóta verðlaun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×