Danski turninn ekki lengur dýrlingur heldur refur Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 12. ágúst 2021 17:00 Jannik Vestergaard í leik gegn Englandi á EM í sumar. Visionhaus/Getty Images Daninn Jannik Vestergaard hefur ákveðið að söðla um og færa sig um set í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur leikið með Southampton undanfarin ár en er nú á leið til Leicester City.
Vestergaard hefur leikið með Southampton frá 2018 en þar áður var hann í Þýskalandi. Hann er 1.99 metri á hæð og er engin smá smíð. Talið er að Leicester borgi 15 milljónir punda fyrir miðvörðinn knáa þó hvergi komi fram hversu langan samning hann skrifi undir. Jannik Vestergaard is in Leicester to complete his move as new #LCFC centre back. Done deal confirmed - paperworks to be signed today afternoon between the two clubs. #LeicesterContract has been signed after personal terms agreed. Here-we-go.— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) August 12, 2021 Hinn 29 ára gamli Vestergaard stóð vaktina í vörn danska landsliðsins á Evrópumótinu í sumar og á alls að baki 28 A-landsleiki. Þá lék hann á sínum tíma einnig 28 leiki fyrir danska U-21 árs landsliðið. Refirnir hafa reynt að festa kaup á Vestergaard síðan í janúar 2020 en ekki haft erindi sem erfiði. Eftir slæm meiðsli Wesley Fofana hefur Brendan Rodgers ákveðið að setja allt púður í að sækja danska varnarmanninn og loksins lét Southampton undan. Vestergaard var mjög eftirsóttur í sumar og er talið að West Ham United, Wolves og Tottenham Hotspur hafi öll haft augastað á kappanum.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Enski boltinn Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Körfubolti Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Körfubolti Fleiri fréttir Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum Varamarkmaðurinn og Håland hetjurnar: Man City á toppinn fyrir lokaumferðina Emirates verður aðalheimavöllur Arsenal á næstu leiktíð Guardiola: Arsenal verður meistari ef við vinnum ekki Tottenham Var með 0,99 í xG en skoraði samt ekki Varane kveður United eftir tímabilið Fernandes íhugar að stökkva frá borði Hrósaði karakter leikmanna eftir að liðið henti frá sér unnum leik Sjá meira