Íslenski boltinn

Blikar búnir að vinna sjö leiki í röð á gervigrasi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Höskuldur Gunnlaugsson skoraði tvö mörk fyrir Breiðabliksliðið í sigrinum í Garðabænum í gær.
Höskuldur Gunnlaugsson skoraði tvö mörk fyrir Breiðabliksliðið í sigrinum í Garðabænum í gær. Vísir/Hafliði Breiðfjörð

Það er erfitt að ráða við léttleikandi lið Blika á gervigrasi og það sýnir líka tölfræðin.

Blikar unnu Stjörnuna 3-1 í Pepsi Max deildinni í gærkvöldi og hafa þar með unnið sjö leiki í röð á gervigrasi hvort sem það eru deildarleikir eða leikir í Evrópukeppni.

Það sem meira er að markatala Blika í þessum sjö síðustu gervigrasleikjum er átján mörk í plús eða 22 mörk á móti 4. Þeir eru því búnir að skora 3,14 mörk í leik í leikjunum sjö.

Það gengur ekki eins vel á grasvöllunum því Blikar hafa ekki unnið grasleik síðan þeir sóttu sigur til Lúxemborgar í fyrstu umferð Evrópukeppninnar 8. júlí síðastliðinn. Í þeim leik lentu þeir 2-0 undir á móti Racing FC Union en tókst að komast til baka og vinna 3-2 sigur.

Blikar eru síðan án sigurs í fjórum síðustu grasleikjum sínum og meðal þeirra er fyrri leikurinn á móti Aberdeen á Laugardalsvellinum í síðustu viku. Liðin mætast síðan aftur á grasinu á Pittodrie leikvanginum á fimmtudaginn.

Blikar duttu líka út úr bikarnum eftir 2-0 tap í framlengingu á móti Keflavík á grasvellinum í Keflavík.

En þegar þeir spila á gervigrasi þá virðast fáir ráða við þá þessa dagana. Síðasti til að vinna þá á gervigrasi voru Valsmenn 16. júní síðastliðinn.

  • Síðustu leikir Blika á gervigrasi 9. ágúst:
  • 3-1 sigur á Stjörnunni
  • 2. ágúst: 4-0 sigur á Víkingi
  • 29. júlí: 2-1 sigur á Austria Vín
  • 15. júlí: 2-0 sigur á Racing FC Union
  • 3. júlí: 4-0 sigur á Leikni
  • 27. júní: 3-2 sigur á HK
  • 20. júní: 4-0 sigur á FH
  • --
  • Síðustu leikir Blika á náttúrulegu grasi
  • 5. ágúst: 2-3 tap fyrir Aberdeen
  • 25. júlí: 0-2 tap fyrir Keflavík
  • 22. júlí: 1-1 jafntefli við Austria Vín
  • 18. júlí: 1-1 jafntefli við KR
  • 8. júlí: 3-2 sigur á Racing FC Union



Fleiri fréttir

Sjá meira


×