Sport

Dagskráin í dag: Stórleikur að Meistaravöllum

Arnar Geir Halldórsson skrifar
KR og Breiðablik mætast í Vesturbænum í kvöld
KR og Breiðablik mætast í Vesturbænum í kvöld

Íslenski fótboltinn verður fyrirferðamikill á sportstöðvum Stöðvar 2 í dag þar sem hæst ber stórleikur KR og Breiðabliks í Pepsi Max deild karla. 

Eitt stig skilur liðin að í þriðja og fjórða sæti deildarinnar og ljóst að liðið sem vinnur leikinn mun lyfta sér upp fyrir Víking í 2.sæti deildarinnar.

Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport en alls fara þrír leikir fram í Pepsi Max deildinni í dag. KA mætir HK og FH fær Fylki í heimsókn.

Auk fótbolta verður nóg um að vera í golfinu þar sem úrslitin í Opna breska meistaramótinu munu ráðast í dag.

Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.

Öll stærstu golfmótin eru á Stöð 2 Golf en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Stöð 2 Golf kostar 3.990 krónur á mánuði en er einnig hluti af Sportpakkanum. Helgarpassa að Stöð 2 Golf má kaupa á kerfum Vodafone.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×