Lífið

Heiða Ólafs hvarf aftur til for­­tíðar með Simma Vill og Kalla Bjarna

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Söngkonan Heiða Ólafs var gæsuð af vinkonum sínum í gær.
Söngkonan Heiða Ólafs var gæsuð af vinkonum sínum í gær. Skjáskot

Söngkonan Heiða Ólafsdóttir var gæsuð af vinkonuhóp sínum í gær. Eins og við var að búast var mikið sungið, enda samanstendur vinkonuhópur hennar af mörgum af flottustu söngkonum landsins. 

Það voru þeir Kalli Bjarni Guðmundsson og Sigmar Vilhjálmsson sem sóttu gæsina. Þeir tengjast henni í gegnum þættina Idol stjörnuleit. Heiða keppti í Idolinu árið 2005 og lenti í 2. sæti. Sigmar, betur þekktur sem Simmi, var kynnir þáttanna ásamt Jóhannesi Ásbjörnssyni eða Jóa, og Kalli Bjarni sigraði Idolið svo eftirminnilega árið 2003.

Simmi Vill rifjaði upp gamla takta og tók viðtal við Heiðu.Skjáskot

Simmi tók stutt og skemmtilegt viðtal við Heiðu líkt og hann var vanur að gera í Idolinu. Þremenningarnir fóru svo í svokallað „carpool karaoke“ þar sem þau tóku meðal annars lagið Ride Sally Ride.

Loks hélt vinkonuhópurinn í Sky Lagoon þar sem þær höfðu það náðugt. 

Kalli Bjarni, Heiða og Simmi tóku meðal annars lagið Ride Sally Ride.Skjáskot
Vinkonuhópurinn fór með gæsina í Sky Lagoon.Skjáskot

Heiða hefur komið víða við á söngferli sínum og myndað vinskap við margar af helstu söngkonum landsins. Í gæsuninni var því samankominn hópur af flottustu söngkonum landsins, en þar má nefna Heru Björk, Regínu Ósk, Margréti Eir, Ernu Hrönn, Siggu Eyrúnu, Írisi Hólm og Ölmu Rut.

Það kann því engan að undra að raddböndin hafi verið þanin í gæsuninni. Búið var að undirbúa sérstakan karaoke bíl þar sem Heiða tók lagið. Þá var einnig gleðskapur um kvöldið þar sem mikið var sungið og enginn annar en Hreimur Örn Heimisson mætti með gítarinn og stóð fyrir Pub Quizi.

Hreimur Örn Heimisson hélt uppi stuðinu um kvöldið.Skjáskot

Heiða mun ganga að eiga unnusta sinn Helga Pál Helgason, doktor í tölvunarfræði, í sumar. Parið kynntist árið 2019 en opinberuðu samband sitt ekki fyrr en í ársbyrjun 2020. Áður var Heiða í sambandi með Idol-sigurvegaranum Snorra Snorrasyni og eiga þau saman einn dreng.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×