Innlent

Fýlu­púka­fé­lagið í Sjálf­stæðis­flokknum safnar vopnum sínum

Jakob Bjarnar skrifar
Brynjar skorar á Harald að flytja ekki að heiman.
Brynjar skorar á Harald að flytja ekki að heiman. vísir/vilhelm

Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins gaf það út í gær að hann væri hættur við að hætta í pólitíkinni. Hann skorar nú á Harald Benediktsson þingmann félaga sinn í flokknum að gera slíkt hið sama.

Haraldur Benediktsson sagði í prófkjörsbaráttu að ef hann myndi ekki hreppa oddvitasætið myndi hann segja þetta gott. Sú varð reyndin, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir lagði hann næsta léttilega í prófkjöri flokksins í Norðvesturkjördæmi. En í kjölfarið komu vöflur á Harald, að hann hafi nú kannski ekki sagt þetta og nú vill Brynjar leggja sitt af mörkum til að losa hann úr klípunni.

Mikill fögnuður braust út á síðu Brynjars í gær þegar fyrir lá að hann ætlaði sér að taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins og í gamansamri Facebook-færslu sem Brynjar birti nú í morgun segir Brynjar að Haraldur sé undir feldi, líkt og hann sjálfur var, en það sé minkafeldur í tilfelli Haralds.

Kraftmikill dugnaðarforkur

„Þótt ég skilji mjög vel afstöðu Haraldar vil ég hvetja hann til þess að taka sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðvestur kjördæmi,“ segir Brynjar og tekur svo til við að tíunda kosti Haralds. Þeir hafi nú starfað saman á þingi í átta ár og fullyrða megi að hann sé einhver öflugasti þingmaður þjóðarinnar.

„Þótt hann sé miðaldra karl og bóndi að auki. Hann er kraftmikill dugnaðarforkur sem hefur leitt mörg að mestu framfararmálum síðustu ára, ekki bara í eigin kjördæmi heldur um landið allt. Vandamálið með Harald er að hann er full hógvær og tranar sér ekki nægilega fram.“

Og þá telur Brynjar vert taka af öll tvímæli um að Haraldur sé leiðindaskarfur, því það er hann ekki.

„Þótt Haraldur sé nú um stundir formaður fýlupúkafélagsins er hann bráðskemmtilegur maður og fyndinn á sinn lúmska hátt. 

Það er engin hætta á að hann drepi mann úr leiðindum.“

Íhaldsöflin vilja nú brjóta odd af oflæti sínu

Brynjar, sem fær mikil og jákvæð viðbrögð við þessari hvatningu sinni til Haralds, að hann fari nú ekki að heiman, segir að á þing þurfi að vera fleiri sem hafi víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og hafi notið trausts til ýmissa mikilvægra trúnaðarstarfa.

„Nóg er af þingmönnum sem varla hafa verið þátttakendur í atvinnulífinu og aldrei séð VASK skýrslu hvað þá fyllt slíka skýrslu út. Ég veit að Soffía frænka vill að Haraldur haldi áfram í stjórnmálum og ég veit líka að hann vill ekki fá hana í heimsókn á Vestri-Reyni með sópinn.“

Meta má það svo að íhaldssöm öfl hafi orðið undir í Sjálfstæðisflokknum og óttast ýmsir að þau muni leita til Miðflokksins. Þannig hlýtur það að vera léttir fyrir flokksforystuna ef sá hópur ætlar að brjóta odd af oflæti sínu og fara ekki í fússi. Þá má einnig túlka niðurstöður prófkjöranna þannig að um flokkinn hafi farið einskonar kvenfrelsisbylgja en konur innan flokksins brugðust einmitt mjög hart við ummælum Haralds um að hann myndi hætta ef hann væri ekki oddviti og túlkuðu það sem hótun.


Tengdar fréttir

Þórdís þakklát fyrir traustið og Haraldur hvattur til að þiggja sætið

„Þetta er afgerandi traust og yfirlýsingu frá fólkinu í kjördæminu. Ég er auðvitað afskaplega þakklát fyrir það,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, sem bar sigur úr býtum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. „Þetta er breiður stuðningur og mikill, sem ég fann alveg fyrir en samt leyfði ég mér að dreyma um svona niðurstöðu en þorði ekki að búast við henni.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×