Fótbolti

7 dagar í EM: Þurftu hlutkesti og aukaleik á leið sinni að Evrópumeistaratitlinum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Giacinto Facchetti lék 94 landsleiki fyrir Ítalíu frá 1963 til 1977 þar af 70 þeirra sem fyrirliði.
Giacinto Facchetti lék 94 landsleiki fyrir Ítalíu frá 1963 til 1977 þar af 70 þeirra sem fyrirliði. Getty/Peter Robinson

Vísir telur niður í Evrópumótið í knattspyrnu sem hefst 11. júní næstkomandi. Ítalir unnu EM í fyrsta og eina skiptið fyrir 53 árum en þurftu þá heldur betur að treysta á heppnina.

Ítalir hafa fjórum sinnum orðið heimsmeistarar í knattspyrnu en eini Evrópumeistaratitill Ítala kom í hús árið 1968.

Í þá daga var úrslitakeppnin bara undanúrslit og úrslitaleikur. Lokakeppnin fór fram á Ítalíu fimm daga í júnímánuði 1968.

Það áttu bara að vera tveir leikir hjá liði í úrslitakeppninni en Ítalir enduðu á að spila þrjá áður en þeir fengu að lyfta bikarnum.

Undanúrslitaleikur Ítala og Sovétmanna endaði með markalausu jafntefli eftir framlengingu en Ítalir misstu Gianni Rivera meiddan af velli snemma leiks og þurftu að spila manni færri nær allan leikinn. Í þá daga voru engar skiptingar leyfðar.

Í þá daga var heldur engin vítakeppni og úrslitin réðust því á endanum á hlutkesti. Fyrirliðar Ítalíu og Sovétríkjanna hittust þá í dómaraherberginu og Giacinto Facchetti, fyrirliði Ítala, valdi rétt og kom sínum mönnum í úrslitaleikinn.

„Annar leikmaður hjá okkur var með mikinn krampa þannig að við endum í raun með níu og hálfan mann. Þýski dómarinn kallaði á okkur fyrirliðana og við fórum með honum niður dómaraherbergið. Hann tók þá fram gamlan pening og ég kallaði bakhliðina. Ég valdi rétt og Ítalía var komið í úrslitaleikinn. Ég hljóp þá upp til að fagna með liðsfélögunum. Leikvangurinn var ennþá fullur og sjötíu þúsund manns biðu eftir niðurstöðunni. Fagnaðarlæti mín sögðu þeim að þau gátu fagnað ítölskum sigri,“ sagði Giacinto Facchetti í samtali við heimasíðu UEFA.

Liðsfélagi Facchetti hafði engar áhyggjur þegar hann frétti af því að Facchetti myndi velja fyrir Ítalíu.

„Einn af liðsfélögunum mínum [Tarcisio] Burgnich, spurði hver myndi velja fyrir okkur. Þegar þeir sögðu honum að það yrði ég þá sagði hann: Þetta er búið, Facchetti er svo heppinn. Sem betur fer þá hafði hann rétt fyrir sér,“ sagði Facchetti.

Þetta var fyrsti úrslitaleikur Ítala á stórmóti í þrjátíu ár eða síðan á HM 1938 þegar þeir unnu.

Úrslitaleikirnir á móti Júgóslavíu urðu á endanum tveir. Ítalir jöfnuðu metin tíu mínútum fyrir leikslok í fyrri leiknum með marki Angelo Domenghini en í aukaleiknum unnu Ítalir 2-0 sigur með mörkum Luigi Riva og Pietro Anastasi á fyrsta hálftíma leiksins.

Í ítalska markinu stóð Dino Zoff. Hann var líka í markinu á HM 1982 þegar Ítalir urðu heimsmeistarar en þá hafði ítalska landsliðið ekki unnið stórmót síðan á EM í júní 1968.


EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 verður einnig hægt að kaupa stakt á kr. 6.990 en fyrir viðskiptavini með aðra áskrift en ofangreindar frá Stöð 2 kostar áskriftin kr. 3.990.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×