Golf

Bretarnir gætu notið sín í vindinum á einum erfiðasta velli heims

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rory McIlroy vann loks mót fyrir tveimur vikum og mætir fullur sjálfstrausts til leiks á PGA meistaramótinu.
Rory McIlroy vann loks mót fyrir tveimur vikum og mætir fullur sjálfstrausts til leiks á PGA meistaramótinu. getty/Jamie Squire

Þorsteinn Hallgrímsson, golfsérfræðingur, kveðst afar spenntur fyrir PGA meistaramótinu sem hefst í dag. Leikið er á Kiawah Island vellinum í Suður-Karólínu sem er ógnarlangur og mjög erfiður.

„Völlurinn er krefjandi og þetta er einn af erfiðustu golfvöllum sem leikið er á. Hæsta tala sem hægt er að fara í erfiðleikstuðli golfvalla er 155. Þessi völlur er 155. Þetta er einn erfiðasti völlur sem leikið er á,“ sagði Þorsteinn í samtali við Svövu Kristínu Grétarsdóttur í Sportpakkanum.

„Ég hlakka svakalega til að horfa á allra bestu karlkylfingana glíma við svona erfiðan völl.“

Klippa: Þorsteinn um PGA meistaramótið

Þorsteinn segir að sigurvegari PGA meistaramótsins gæti komið úr óvæntri átt.

„Það gæti alveg farið svo því völlurinn er erfiður. Hann er við sjóinn og það gæti verið vindur. Það eru margir sem telja að það gæti hentað einhverjum Bretum. Þeir þekkja vindinn þannig að við gætum séð eitthvað óvænt,“ sagði Þorsteinn.

Hann hefur ágætis trú á Rory McIlroy sem vann loks mót um þarsíðustu helgi eftir eins og hálfs árs bið.

„Hann vann síðasta mót sem hann tók þátt í fyrir tveimur vikum. Jordan Spieth hefur leikið vel sem og margir aðrir. Justin Thomas, Jon Rahm og Brooks Koepka leikur venjulega vel á þessum stóru mótum,“ sagði Þorsteinn.

Bandaríkjamaðurinn Collin Morikawa á titil að verja en hann hrósaði sigri á PGA meistaramótinu á síðasta ári.

Bein útsending frá fyrsta degi PGA meistaramótsins hefst klukkan 17:00 á Stöð 2 Golf.


Öll stærstu golfmótin eru á Stöð 2 Golf en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Stöð 2 Golf kostar 3.990 krónur á mánuði en er einnig hluti af Sportpakkanum. Helgarpassa að Stöð 2 Golf má kaupa á kerfum Vodafone.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×