Innlent

Reiknað með að fjölmiðlafrumvarpið verði að lögum á vorþingi

Heimir Már Pétursson skrifar
Fjölmiðlafrumvarp Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra hefur átt erfitt uppdráttar á kjörtímabilinu vegna ólíkra sjónarmiða stjórnarflokkanna.
Fjölmiðlafrumvarp Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra hefur átt erfitt uppdráttar á kjörtímabilinu vegna ólíkra sjónarmiða stjórnarflokkanna. Vísir/Vilhelm

Formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis telur að samstaða náist um afgreiðslu fjölmiðlafrumvarps menntamálaráðherra sem tekið var af dagskrá þingfundar í gær. Hann reikni með að frumvarpið verði að lögum á yfirstandandi þingi en álitaefni séu um gildistíma þess.

Frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra um stuðning við einkarekna fjölmiðla hefur átt töluvert erfitt uppdráttar á Alþingi frá því það var fyrst lagt fram á kjörtímabilinu. Í fyrra var síðan ákveðið að styrkja einkarekna fjölmiðla sérstaklega vegna covid faraldursins og var þá tekið mið af frumvarpinu hvað heildarupphæð varðaði eða 400 miljlónir króna.

Frumvarpið var afgreitt út úr allsherjar- og menntamálanefnd til annarrar umræðu með nefndarálitum bæði meiri- og minnihluta í gær og var á dagskrá þingfundar í gær en var síðan tekið af dagskránni.

Páll Magnússon formaður allsherjar- og menntamálanefndar telur fullvíst að fjölmiðlafrumvarpið verði að lögum áður en vorþingi lýkur.Vísir/Vilhelm

Páll Magnússon formaður nefndarinnar segir málið þó ekki hafa verið kallað til baka til nefndarinnar.

„Það komu upp álitaefni varðandi gildistíma frumvarpsins. Þess vegna ákváðum við að fresta umræðunni sem hefði átt að fara fram í gær og fara aðeins yfir það mál. Ég reikna með að það komi niðurstaða í það mál á morgun,“ segir Páll.

Það er ekkert launungarmál að töluverð andstaða hefur verið við frumvarpið hjá þingmönnum Sjálfstæðisflokksins. Páll segir ekki ágreining um hvort um verði að ræða einskiptisaðgerð eða ekki. Það sé heldur ekki ágreiningur um gildistíma laganna heldur álitaefni um hvað orðalagið varðandi hann þýði.

Hvers vegna hefur þetta mál velkst svona lengi í þinginu. Hvers vegna er þetta svona erfitt?

„Þetta er bara viðkvæmt mál sem tekur á nokkrum grundvallaratriðum. Eins og til dæmis þvíhvort ríkið eigi aðstíga með beinum hætti á fjárlögum til aðstoðar viðfyrirtæki í einkarekstri. Þannig að þaðer eðlilegt að þetta taki langan tíma og kosti svolitla yfirlegu. En ég geri ráð fyrir þvíað við ljúkum þessu máli ánæstu dögum eða vikum og lögin taki gildi fyrir þinglok núna í vor,“ segir Páll.

Þá sé einnig verið að ræða aðra hluti sem snerti rekstrarvanda einkarekinna miðla á Íslandi.

„Þar með taliðskattleysi útlendra samfélagsmiðla á Íslandi. Sem eru farnir aðtaka til sín sístækkandi hluta af íslenskri auglýsingaköku án þess aðþurfa að standa skil áeinu eða neinu hérna áÍslandi. Þannig aðþað kemur inn íþetta mál líka. Þetta mál er flókiðog viðkvæmt en ég geri ráð fyrir að viðljúkum þvíinnan tíðar,“ segir Páll Magnússon.


Tengdar fréttir

Fjölmiðlafrumvarpi frestað fram yfir áramót

Umræðu um fjölmiðlafrumvarp menntamálaráðherra verður frestað fram yfir áramót og umsagnarfrestur um stofnun hálendisþjóðgarðs verður lengdur. Þetta er á meðal þess sem þingflokkarnir sömdu um í gærkvöldi þegar samkomulag náðist um afgreiðslu mála fyrir þinghlé. Samþykkt var að taka fyrstu umræðu um nokkur stjórnarmál, líkt og frumvarp fjármálaráðherra um afnám tvöfaldrar refsingar við skattalagabrotum og frumvörp félagsmálaráðherra um samþættingu á þjónustu fyrir börn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×