Innlent

Fimm greindust smitaðir og einn var utan sótt­kvíar

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Sýnataka vegna Covid 19 hjá Heilsugæslunni á Höfuðborgarsvæðinu.
Sýnataka vegna Covid 19 hjá Heilsugæslunni á Höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Vilhelm

Fimm greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær. Einn var utan sóttkvíar við greiningu. Þetta kemur fram í nýjum tölum á covid.is.

Einn greindist smitaður af veirunni á landamærunum og er niðurstöðu beðið hjá öðrum.

269 eru nú í sóttkví og um 100 í einangrun. Tveir liggja á sjúkrahúsi vegna veirunnar en þeir voru fimm á föstudag.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×