Skoðun

Samstaða

Kári Jónsson skrifar

Verkalýðshreyfingin telur 200.000 félaga, sem er í raun RISA-hersveit. Ekkert er mikilvægara en að þessi fjölmenna hersveit myndi samstöðu innan sinna vébanda.

Þannig getum við saman flutt fjöll og náð fram betri kjarasamningum/lífskjörum fyrir launafólk.

Við saman verðum að tryggja að stjórnvöld hverju sinni taki aldrei ákvarðanir um lífskjör okkar án samstarfs við verkalýðshreyfinguna. Þessum skilaboðum verður að koma skýrt til skila.

Þar sem 1.maí er nýliðinn er sjálfsagt og eðlilegt að minna ríkisstjórn Katrínar-forsætis á þessa sanngjörnu kröfu. Samhliða verður verkalýðshreyfingin að tryggja að félagarnir séu ávallt upplýstir um stöðu og framgang einstakra mála og sameiginlega stefnu ASÍ-samtakanna og tryggja auðveldari þátttöku óbreyttra félaga að ákvarðanatöku. Það er einföld og skilvirk lýðræðisleg valdefling, sem beinlínis stuðlar að mikilvægri samstöðu á meðal launafólks.

Einhver samræða hefur átt sér stað um hvort verkalýðshreyfingin eigi að eiga sinn eiginn fjölmiðil. Þroska þarf þessa samræðu og fá fleiri félaga að borðinu.

Persónulega styð ég heilshugar að verkalýðshreyfingin eigi og reki sinn eiginn fjölmiðil.

Óhjákvæmilega eru eftirlaunasjóðir okkar samtvinnaðir verkalýðsbaráttu okkar.

Hinsvegar sætir furðu að hinn almenni sjóðsfélagi og eigandi þessara eftirlaunasjóða hafi litla eða enga aðkomu að því hverjir skipa stjórnir eftirlaunasjóðanna og að ennþá árið 2021 skipi handbendi atvinnurekanda stjórnir sjóðanna á móti okkar fulltrúum.

Hvar sitja fulltrúar launafólks í stjórnum sjóða atvinnurekanda ?

Myndu atvinnurekendur sætta sig við að fulltrúar launafólks hlutuðust til um hvernig atvinnurekendur fjárfestu sínum skyldusparnaði ?

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR að öðrum ólöstuðum hefur opnað pandórubox spillingarinnar við lítinn fögnuð Samtaka atvinnulífsins, þessi spilling hefur fengið að grassera frá stofnun eftirlaunasjóðanna allar götur frá 1969.

Af þessu tilefni er rétt að minna sjóðfélaga eftirlaunasjóðanna á Kveiks-þáttinn um hvernig eftirlaunum/félagsgjöldum okkar er í raun stolið, vegna útvistunar til þriðja aðila Init ehf, sem lætur þessa fjármuni renna til Init-reksturs ehf, sem hefur note bene engan rekstur.

Rétt er að geta þess að um sömu einstaklinga er að ræða sem hættu við að Kveik viðtal þegar fyrir lág að um stórkostlega sjálftöku/þjófnað var að ræða.

Þessir einstaklingar voru afhjúpaðir í besta falli um stórkostleg mistök og í versta falli þjófnað.

Ég treysti því að allir stjórnarmenn eftirlaunasjóða og verkalýðsfélaga kæri þjófnaðinn til lögreglu.

Tíu eftirlaunasjóðir eiga tölvukerfið sem heldur utan um sjóðsmyndun/réttindi okkar, sem var útvistað til Init ehf.

Er það virkilega svo að þessir eftirlaunasjóðir hafi ekki mannskap sjálfir til að halda utan um þessa sjóðsmyndun/réttindi okkar ?

VR heldur utan um sína félaga í sínu eigin tölvukerfi.

Í viðtali Kveiks við Viðar Thorsteinsson framkvæmdastjóra Eflingar kom fram að Efling-stéttarfélag greiðir 70-80-milljónir fyrir þessa stórundarlegu þjónustu Init ehf.

Höfundur er félagi í Sósíalistaflokki Íslands.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×