„Mig langaði mest að skilja við hana og halda áfram að drekka“ Stefán Árni Pálsson skrifar 20. apríl 2021 11:30 Tómas sló strax í gegn með Búllunni. Tómas Andrés Tómasson, sem er betur þekktur sem Tommi á Búllunni er fyrir löngu orðin goðsögn í íslensku viðskipta- og veitingalífi. Hann er nýjasti gestur Sölva Tryggvasonar í hlaðvarpi hans.
Tommi er í mjög góðu líkamlegu formi og hefur æft mjög reglulega í 40 ár. Hann þakkar Bubba Morthens fyrir það. „Þegar ég fór á Rokk-showið á Broadway 1981 og sá Bubba beran að ofan varð vendipunktur. Hann hljóp um sviðið allur skorinn og vöðvastæltur. Ég fer heim, á þeim tíma þegar ég bjó á skrifstofunni á Tommaborgurum og horfði í spegilinn og mig langaði að fara að gráta. Ég var svo illa á mig kominn. Þarna byrjaði ég að æfa. Skömmu síðar var ég kominn til Kaliforníu og þá æfði ég í Gold´s Gym eftir að Pumping Iron með Arnold Schwarzenegger. Ég hef æft mjög reglulega alveg síðan. Ef að Bubbi hefði ekki verið þarna ber að ofan hefði ég ekki fengið þessa bakteríu og ég hef oft þakkað Bubba fyrir að ég hafi haldið mér í góðu formi í öll þessi ár.“ Þó að Tommi hafi í gegnum tíðina afrekað ótrúlega hluti var leiðin alls ekki alltaf slétt og felld og Tommi segist hafa verið nálægt því að glata öllum sínum tækifærum vegna drykkju. Komst upp með að drekka „Ég byrjaði mjög snemma að drekka, þegar ég var 13 ára gamall og þá opnuðust himnarnir eina ferðina enn. Ég drakk alltaf til að vera fullur og það fór mér illa að drekka. En ég fór að læra kokkinn og maður komst upp með að drekka þar. Ég hætti svo, en byrjaði aftur og þegar ég kom heim frá Bandaríkjunum átti ég erfitt með að fá vinnu af því að það hafði spurst út að ég væri drykkfelldur. En ég hætti ekki, en var svo heppinn að þáverandi konan mín sagði við á einhverjum punkti. Annað hvort hættir þú að drekka vinur eða ég skil við þig. Það er engin lygi að mig langaði mest að skilja við hana og halda áfram að drekka, en ég vildi ekki tapa djobbinu, þannig að ég tók mig til og drakk ekkert í 3 ár og það var dásamlegur tími. Þessi ár, sem voru í Grindavík, voru á margan hátt mín skemmtilegustu og bestu ár.“ Tommi hafði rekið Hard Rock Cafe, Hótel borg og marga fleiri staði þegar hann hugðist fara að setjast í helgan stein upp úr aldamótum, en áttaði sig fljótt á því að staðan væri ekki alveg nógu góð. „Ég seldi Borgina 2001 og hélt ég gæti borgað skuldir mínar og átt afgang og farið að hugsa til þess að verða grand old man, en ég skuldaði meira en ég hélt og átti minna en ég átti von á og var miklu blankari en ég hélt. Ég notaði alltaf tvo eyrnapinna eftir sturtu á morgnana, en ég var orðinn svo blankur þarna að ég tímdi bara að nota einn. En það sem vakti mig til lífsins var þegar ég þurfti að kaupa fyrirframgreitt simkort árið 2003. Ég þurfti að fara inn á 3 bankareikninga til að skrapa saman 500 kall. Þá áttaði ég mig á því að ég yrði að gera eitthvað í mínum málum. Þetta var í raun upphafið að því að ég stofnaði Búlluna. Þetta var þvílíkt sjokk og niðurlæging. Að Tommi á Hard Rock og Borginni ætti ekki einu sinni 500 kall til að setja inn á símann sinn. En þegar hugmyndin kom um að fara aftur að steikja hamborgara fannst mér það nánast niðurlægjandi. Það var tímabil sem átti að vera búið. En svo fór fólk að tala um það að Tommi væri aftur að byrja með hamborgarastað og smám saman sá ég að það gæti verið besti kosturinn í stöðunni.“ Leigðu staðinn nokkrum sinnum Eins og þekkt er orðið gekk Hamborgarabúllan strax mjög vel og áður en langt um leið var búið að opna Búlluna í London og þar varð fljótt mikið að gera líka. „Einn daginn sáum við það svo að David Beckham var mættur á staðinn til að fá sér hamborgara. Hann var bara í úlpu með sixpensara og strákinn sinn með sér og allt í einu tekur einhver eftir því að hann er þarna og það er fólk sem biður um myndir af sér með honum og þá eigum við myndir af honum inni á staðnum og svo kom hann nokkrum sinnum eftir þetta. Svo opnuðum við á King´s Road og ég veit ekki hvernig á því stóð að þau hjónin leigðu þann stað tvisvar sinnum til að halda afmælisveislu fyrir börnin sín. Þau voru bara þarna eins og hjón úr Breiðholtinu að passa barnaskarann. Við sögðum engum frá þessu, en þetta spurðist út. Og ég segi það núna að ég hefði frekar viljað fá Beckham í heimsókn á staðinn heldur en Bretaprins. Það er öllum vel við Beckham úti um allan heim og allir vilja tengjast honum.“ Í þættinum fara Sölvi og Tommi yfir lygilegan feril Tómasar, sem spannar allt frá 22 króna hamborgurum á Tommaborgurum yfir í eignarhald á Hard Rock, Búllunni í London og ótal fleiri hluti.
Podcast með Sölva Tryggva Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Beint flug til Portó Lífið samstarf HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Hvað veistu um... fugla? Lífið Fleiri fréttir Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Sjá meira