Lífið samstarf

Söknuðu fjölskyldumatartímans á Spáni og opnuðu veitingaþjónustu

Barceloneta
Efst til vinstri Zoe Sarsanedas, Elma Backman, Pedro Lopez, Ágúst Breki (sonur Elmu og Alberts). Neðri röð frá hægri: Dagur Pétursson Pinós, Albert Muñoz.
Efst til vinstri Zoe Sarsanedas, Elma Backman, Pedro Lopez, Ágúst Breki (sonur Elmu og Alberts). Neðri röð frá hægri: Dagur Pétursson Pinós, Albert Muñoz.

Tvær fjölskyldur og spænskur kokkur kynna spænska matarmenningu fyrir sólþyrstum Íslendingum.

„Spánverjar kunna að njóta matarins og gefa sér tíma til þess. Þar kemur fjölskyldan saman og eldar í sameiningu. Svo borða allir upp úr risastórri pönnu á miðju borði með skeið og tala stanslaust um matinn á meðan. Okkur langaði til þess að færa þessa spænsku tilfinningu og fjölskyldumenningu hingað og fannst sárlega vanta ekta paellu og tapas veitingastað í Reykjavík,“ segir Elma Backman, ein fimm eigenda veitingaþjónustunnar Barceloneta.

Sjóðheit paellupannan fer á mitt borð og svo sameinast fjölskyldan við borðið.

Tvenn hjón standa að fyrirtækinu, hálfíslensk og hálfspænsk og svo kokkurinn og paellumeistarinn Pedro Lopez sem töfrar fram réttina. Elma er íslensk og maðurinn hennar Albert Muñoz er frá Barcelona, Dagur Pétursson Pinós er hálf spænskur og hálfíslenskur en fæddur og uppalinn í Bercelona og Zoe Sarsanedas, konan hans er spænsk. Öll hafa þau mikla tengingu við mat en bæði Albert og Dagur hafa starfað á veitingastöðum í Barcelona frá því þeir voru krakkar. Albert ólst upp í verslun ömmu sinnar sem seldi meðal annars íslenskan saltfisk og Dagur fylgdist með sinni ömmu elda í vinnunni.

„Amma mín var kokkur í skólanum sem ég var í sem barn svo það má segja að ég hafi alist upp í eldhúsinu hjá henni. Ég kom síðan fyrst hingað til Íslands í sumarvinnu sem uppvaskari á veitingastað og fljótlega kviknaði áhuginn á að læra að elda,“ segir Dagur.

Mæta með sjóðheita paellu heim að dyrum

„Við ætluðum okkur fyrst að opna veitingastað síðasta sumar en covid setti strik í reikninginn. Við snerum okkur þá að heimsendingu og viðtökurnar hafa sannarlega farið fram úr björtustu vonum. Við sendumst með tapas og paellur um allan bæ. Við komum með paelluna heim til fólks í sjóðheitri pönnunni og skiljum eftir. Það er svo mikil stemming að borða beint af pönnunni eins og Spánverjar gera og við viljum að fólk upplifi það. Við sækjum svo bara pönnuna daginn eftir. Það hefur líka verið mjög vinsælt að fá Pedro heim til að elda því það er svo gaman að sjá hvernig þetta er gert,“ segir Elma og Dagur fullyrðir að enginn verði svikinn af kokkatöktum Pedros.

Pedro hefur eldað paellur í 25 ár og veit hvað hann syngur.

„Pedro er algjör paellu-snillingur. Hann átti veitingastað í Alicante í 25 ár áður en hann flutti hingað til Íslands fyrir fimm árum. Það er stórkostleg upplifun að fylgjast með honum elda. Hann elskar að tala og segja frá matnum og talar mjög hratt. Hann lætur það ekki stoppa sig að hann talar hvorki ensku né íslensku og útskýrir allt vel og rækilega þó enginn skilji neitt,“ segja þau hlæjandi.

„Íslendingar eru sannarlega til í suðræn ævintýri og þetta er eitthvað sem ekki hefur verið boðið upp á áður í Reykjavík. Það kemur alveg í staðinn fyrir grillveislu úti í garði að fá Pedro til að elda Paellu. Hann notar eingöngu fyrsta flokks hráefni og við flytjum meðal annars hráefnin inn frá Spáni. Við söknuðum matarins hreinlega svo mikið og ákváðum því að búa hann til sjálf. Við erum afar stolt af Barceloneta. Við erum eins og ein stór fjölskylda og viljum bjóða upp á einstaka stemmingu,“ segir Elma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×