Heimsmarkmiðin

Slökkt á ljósum annað kvöld í þágu náttúrunnar

Heimsljós

Allir jarðarbúar eru hvattir til að slökkva ljósin annað kvöld til að minna á orku- og loftslagsmál.

Stund jarðar“ verður haldin annað kvöld, laugardaginn 27. mars, en þá eru allir jarðarbúar hvattir til þess að slökkva ljósin í eina klukkustund, frá 20:30 til 21:30. Þetta er í fimmtánda sinn sem ljós eru slökkt í þeim tilgangi að sýna samstöðu mannkyns um nauðsyn þess að náttúran sé ávallt í öndvegi. Markmiðið með átakinu er að senda áhrifafólki um heim allan öflug skilaboð: að grípa verði til aðgerða í þágu loftslagsins og sporna við hnignun líffræðilegrar fjölbreytni.

Árið 2020 tóku 190 ríki þátt í átakinu og slökktu ljósin, ekki til að spara orku, heldur til að lýsa stuðningi við málefnin með táknrænum hætti. Í frétt á vef Upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna (UNRIC) segir að búast megi við að afdrifaríkar ákvarðanir verði teknar í ár um loftslagsaðgerðir, náttúruna og sjálfbæra þróun. Þessar ákvarðanir kunna að marka braut mannkynsins og plánetunnar næstu ár og áratugi.

Fimmtánda heimsmarkmiðin snýr að lífi á landi. Þar er kveðið á um aðgerðir til að spyrna við fótum í þágu lífríkisins. Í frétt UNRIC segir að áður en kórónuveirufaraldurinn braust út hafi verið talið að 31 þúsund allra þekktra lífvera væru í útrýmingarhættu. Þar að auki hafa 100 milljónir hektarar skóglendis tapast frá því aldamótaárið 2000, auk þess sem einungis þriðjungur þátttökuríkja hafi náð landsmarkmiðum sínum um viðspyrnu við hnignun lífríkisins.

Að sögn UNRIC hefur átakið átt sinn þátt í að efla vitund almennings um loftslagsbreytingar og þoka málinu efst á forgangslista alheimsmála. Hreyfingin hafi stuðlað að stofnun 3,5 milljón hektara verndar-hafsvæðis í Argentínu og 2,700 hektara „Stundar jarðar“-skógar í Úganda. Auk þess er nefnt bann við notkun plasts á Galapagos-eyjum og gróðursetning 17 milljóna trjáa í Kasakstan í frétt UNRIC.

Allir eru hvattir til þess að taka þátt í „Stund jarðar“ annað kvöld með því að slökkva ljósin milli hálf níu og hálf tíu og taka þátt í umræðu á samfélagsmeðlimum. Myllumerkin eru #EarthHour #Connect2Earth og #TogetherPossible.

Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×