Innlent

Oddvitinn gefur kost á sér í 2.-3. sæti

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Helgi Héðinsson er klár í kosningaslaginn.
Helgi Héðinsson er klár í kosningaslaginn.

Helgi Héðinsson, oddviti Skútustaðahrepps, hefur ákveðið að vandlega athuguðu máli í samráði við fjölskyldu og vinni að bjóða sig fram á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi og sækist þar eftir 2. til 3. sæti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Helga.

„Meginástæða þess að ég gef kost á mér nú er óbilandi trú mín á þeirri vegferð sem Framsóknarflokkurinn hefur verið á, sér í lagi á líðandi kjörtímabili. Vegferð samvinnu, uppbyggingar og umbóta sem knúin er áfram af fólki með hugsjónir. Mér líður eins og ég geti lagt þeim málstað lið, en ekki síður að þar sé vettvangur góðra verka sem ég vil fylgja fast eftir,“ segir í tilkynningu Helga.

„Síðustu ár hef ég unnið af krafti sem oddviti Skútustaðahrepps. Þar hef ég í góðum hópi fólks starfað eftir hugmyndafræði sem ég er ákaflega stoltur af. Hugmyndafræðin byggir á því að styrkja stoðir samfélagsins með hamingju og vellíðan fólksins að leiðarljósi. Leiðirnar að hamingjunni eru æði mismunandi og að mörgu þarf að huga sem ég tíunda ekki að fullu hér. Öll viljum við hins vegar búa við sanngjörn tækifæri til að skapa okkur lífsviðurværi. Við viljum njóta lífsgæða og lífsfyllingar. Við viljum hafa aðgengi að menntun og heilsugæslu. Við viljum hugsa vel um umhverfið okkar og njóta menningar og lista. Við viljum verja meiri tíma með vinum og fjölskyldu og við viljum að þeir sem starfa í okkar þágu geri það af heilindum og með almannahag að leiðarljósi. Við viljum fá aðstoð þegar við leitum eftir henni vegna veikinda, hvort sem þau eru líkamleg eða á andlega sviðinu. Þetta er það sem ég brenn fyrir.“

Hann segist hafa verið svo lánsamur að hafa haft tækifæri til að byggja sér traustan grunn með fjölskylduna sér við hlið.

„Síðustu 15 ár hef ég byggt upp rekstur á Geiteyjarströnd í Mývatnssveit í ferðaþjónustu, fiskvinnslu og við sauðfjárbúskap. Ég hef menntað mig og lokið meistaraprófi í viðskiptafræði auk MBA gráðu frá Háskóla Íslands. Ég hef fengið tækifæri til að rækta leiðtogann á ýmsum sviðum, þar á meðal í handboltanum á Selfossi og í Mosfellsbænum, hjá Sparisjóði Suður-Þingeyinga, við kennslu í Háskóla Íslands og sem formaður veiðifélags Mývatns.

Umfram allt er ég ungur, jákvæður og bjartsýnn. Fullur af krafti til góðra verka. Nú legg ég allt á borðið. Hugmyndafræðina, karakterinn og bakgrunninn og óska eftir stuðningi ykkar.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×