Enn eitt tapið hjá KR en Fjölnir og Valur á toppnum Anton Ingi Leifsson skrifar 20. janúar 2021 21:09 Helena Sverrisdóttir var atkvæðamikil í kvöld. vísir/bára KR tapaði fimmta leiknum af fimm mögulegum í Domino’s deild kvenna er liðið tapaði fyrir Fjölni á útivelli í kvöld, 75-68. Á sama tíma vann Valur sigur á Snæfell á heimavelli og er á toppi deildarinnar, ásamt Fjölni. Fjölnir byrjaði betur og var sex stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann og tólf stigum yfir í hálfleik. Aðeins náðu Vesturbæjarstúlkur að minnka muninn í þriðja og fjórða leikhlutanum en lokatölur 75-68, sigur Fjölnis. Ariel Hearn var mögnuð í liði Fjölnis. Hún skoraði þrjátíu stig, tók fimmtán fráköst og gaf sex stoðsendingar. Lina Pikciuté skoraði fimmtán stig og tók þrettán fráköst fyrir Fjölni sem er með átta stig — á toppnum með Val. Taryn Ashley Mc Cutcheon gerði 24 stig fyrir KR. Að auki tók hún fimm fráköst og gaf sjö stoðsendingar. Annika Holopainen bætti við 21 stigi og níu fráköstum en KR er á botni deildarinnar. Valur vann 80-68 sigur á Snæfell á heimavelli. Snæfell var þó aldrei langt undan eins og lokatölurnar gefa til að kynna. Staðan í hálfleik var 37-32 en Valsliðið vann þó alla fjóra leikhluta kvöldsins. Helena Sverrisdóttir var einu sinni sem oftar ein af þeim atkvæðameiri í liði Vals. Hún gerði sautján stig, tók þrettán fráköst og gaf átta stoðsendingar. Hallveig Jónsdóttir var hins vegar stigahæst með 21 stig. Haiden Denise Palmer gerði sautján stig fyrir gestina. Einnig tók hún sex fráköst. Emese Vida gerði tíu stig og tók tólf fráköst en Kamilé Berenyté skoraði einnig tíu stig. Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Dominos-deild kvenna KR Valur Snæfell Fjölnir Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira
Fjölnir byrjaði betur og var sex stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann og tólf stigum yfir í hálfleik. Aðeins náðu Vesturbæjarstúlkur að minnka muninn í þriðja og fjórða leikhlutanum en lokatölur 75-68, sigur Fjölnis. Ariel Hearn var mögnuð í liði Fjölnis. Hún skoraði þrjátíu stig, tók fimmtán fráköst og gaf sex stoðsendingar. Lina Pikciuté skoraði fimmtán stig og tók þrettán fráköst fyrir Fjölni sem er með átta stig — á toppnum með Val. Taryn Ashley Mc Cutcheon gerði 24 stig fyrir KR. Að auki tók hún fimm fráköst og gaf sjö stoðsendingar. Annika Holopainen bætti við 21 stigi og níu fráköstum en KR er á botni deildarinnar. Valur vann 80-68 sigur á Snæfell á heimavelli. Snæfell var þó aldrei langt undan eins og lokatölurnar gefa til að kynna. Staðan í hálfleik var 37-32 en Valsliðið vann þó alla fjóra leikhluta kvöldsins. Helena Sverrisdóttir var einu sinni sem oftar ein af þeim atkvæðameiri í liði Vals. Hún gerði sautján stig, tók þrettán fráköst og gaf átta stoðsendingar. Hallveig Jónsdóttir var hins vegar stigahæst með 21 stig. Haiden Denise Palmer gerði sautján stig fyrir gestina. Einnig tók hún sex fráköst. Emese Vida gerði tíu stig og tók tólf fráköst en Kamilé Berenyté skoraði einnig tíu stig. Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Dominos-deild kvenna KR Valur Snæfell Fjölnir Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira