„Við höfum efni á þessu“ Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. júlí 2013 14:42 Úr leik Fram og Víkings í gær. Mynd/Stefán
Jónas Gestur Jónasson, formaður knattspyrnudeildar Víkings í Ólafsvík, segir að félagið sé ekki að steypa sér í skuldir með því að fá erlenda leikmenn til félagsins. Síðustu daga hafa Víkingar verið duglegir að styrkja leikmannahópinn en alls hafa fjórir spænskir leikmenn bæst í hópinn. Einn Spánverji hefur verið með síðan í upphafi tímabilsins og verða þeir því alls fimm í liðinu. „Nú erum við hættir,“ sagði Jónas Gestur í léttum dúr við Vísi í dag. „Við teljum okkur vera nógu vel undirbúna fyrir átökin á seinni hluta tímabilsins,“ bætti hann við en Víkingar lyftu sér úr botnsæti Pepsi-deildar karla með 4-3 sigri á Fram í gær. Jónas segir að félagið sé vant því að fá erlenda leikmenn til félagsins og að þeir hafi komið sér í samband við öfluga tengiliði á Spáni sem hafi útvegað þeim þessa leikmenn. „Við höfum fengið bestu gæðin frá Spáni og því fórum við þessa leið núna. Allir þessir leikmenn eru samningslausir og hafa verið að leita sér að félögum síðan í vor.“ Aðspurður um kostnaðinn segir Jónas að þessu fylgir vissulega ákveðinn kostnaður. „En íslenskur fótbolti kostar sitt og veltan er almennt mikil. Þetta er viðráðanlegur kostnaður fyrir okkur og við erum alls ekki að spenna bogann of hátt. Ég hef verið formaður síðan 2001 og ætla ekki að byrja á því núna að steypa félaginu í skuldir.“ „Við erum með öfluga styrktaraðila sem koma almennt að rekstri deildarinnar. Enginn styrktaraðili sér um ákveðna leikmenn heldur koma þeir að starfinu með almennum hætti,“ bætir hann við.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti Fá meira fyrir níu pílna legg heldur en að vinna mótið Sport Algjör upplausn í úrslitaleik Afríkukeppninnar: „Farsakennt“ Fótbolti Úthúðuðu Alfreð og starfið talið í húfi í kvöld Handbolti Gefur Snorra toppeinkunn: „Gríðarleg pressa á honum“ Handbolti Sigur Ungverja stillir upp úrslitaleik við Ísland um toppsætið Handbolti Miðar á milliriðil Íslands rjúka út: „Mikilvægt að tryggja sér miða strax“ Handbolti Eiga vart orð yfir mögnuðum árangri Færeyja: „Algjörlega einstakt“ Handbolti „Elvar og Ýmir voru rosalegir“ Handbolti „Hef verið í handbolta í þúsund ár en hef aldrei séð neitt þessu líkt“ Handbolti Fleiri fréttir Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Birta eltir ástina og semur við Genoa Júlíus Mar seldur til Kristiansund Bæði Blikaliðin fá sánuklefa fyrir komandi tímabil Feginn að vera fluttur heim úr fátækrahverfinu í Kína Svekktur að fá ekki leyfi til að taka við ÍBV Alfreð hættur hjá Breiðabliki Skipulagsbreytingar á skrifstofu KSÍ Nýliðarnir fá bandarískan markvörð Júlíus sagður á förum frá KR til Noregs Sjá meira